Fyrir öll tilefni.

Mikill, þykkur og svartur augnblýantur voru aðalatriðin hjá Sonia og Rykiel og Christian Dior. Hafðu aðra förðun í lágmarki.

Valentino og Givenchy lögðu mikla áherslu á svartan maskara og ekki mikið annað. Mjög flott fyrir helgina.

Eitthvað sérstakt tilefni? Þetta er förðunin sem þú ættir að vera að vinna með. Með þessu geturðu haft fatnaðinn frekar stílhreinan og getur haft þig til á methraða.

Brúnn varalitur á eftir vörinni og aðeins rauðari á neðri. Þarna geturðu komið fólki aðeins á óvart án þess að það sé of áberandi.

Þetta er fullkomið fyrir helgina, og þá sérstaklega ef þú átt leið í brunch. Ferskt og flott, þú lítur út eins og þú sért varla máluð og þín náttúrulega fegurð fær að njóta sín.

Ljósfjólublár er litur vorsins, og má alveg skella honum á augun líka. Slepptu maskaranum og settu vel af ljósfjálubláa augnskugganum, eða ljósbleika, eða ljósgræna, svo lengi sem það er pasteltónn. Finndu þinn lit og smyrðu honum á þig.