Njarðvík kastaði frá sér unnum leik Anton Ingi Leifsson skrifar 21. febrúar 2018 21:04 Ísabella átti góðan leik í kvöld. vísir/ernir
Skallagrímur hafði betur gegn Stjörnunni í Garðabæ og Breiðablik bjargaði sér fyrir horn gegn stigalausum Njarðvíkurstúlkum í Reykjanesbæ, en leikirnir voru liðir af 20. umferð Dominos-deildar kvenna. Stjarnan byrjaði betur gegn Skallagrím, en gaf mikið eftir í öðrum leikhluta þar sem gestirnir úr Borgarnesi gengu á lagið. Þær leiddu í hálfleik, 30-36. Í síðari hálfleik reyndust svo gestirnir sterkari og unnu að lokum með níu stiga mun, 73-64, þar sem Carmen Thyson Thomas átti frábæran leik; með 35 stig og 16 fráköst.Sjá meira:Leik lokið: Haukar - Keflavík 81-63 | Haukar fóru á toppinn Skallagrímur er með 16 stig, jafnt Snæfell og Breiðabliki, en sex stig eru í Stjörnuna sem eru í síðasta úrslitakeppnissætinu. Hjá Stjörnunni var Danielle Rodriguez einu sinni sem oftar stigahæst með 29 stig. Í Reykjanesbæ voru Njarðvíkurstúlkur nálægt því að vinna sinn fyrsta sigur í deildinni þetta árið þegar Breiðablik var í heimsókn í Ljónagryfjunni. Njarðvík var í stuði í fyrsta leikhluta; unnu hann 21-9 og voru 37-31. Njarðvík náði aftur vopnum sínum í þriðja leikhluta, en þær skoruðu einungis sjö stig í fjórða leikhluta gegn 24 stigum Blika. Þar köstuðu þær frá sér leiknum. Shalonda Winton var stórkostleg í liði Njarðvíkur. Hún skoraði 35 stig, tók 20 fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Whitney Knight skoraði 22 stig fyrir Njarðvík og Ísabella Sigurðardóttir gerði 18.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira