Lífið

Barbra Streisand lét klóna hundinn sinn

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Barbra Streisand.
Barbra Streisand. Vísir/Getty

Leikkonan, söngkonan og leikstjórinn Barbra Streisand býr með eiginmanni sínum James Brolin og þremur fallegum Coton de Tulear hvolpum. Hún sagði óvænt frá því í viðtali við Variety að tveir hvolpanna væru klón.



Hvolparnir Miss Violet og Miss Scarlett voru klónaðir með frumum sem voru teknar úr munni og maga hunds sem Streisand missti á síðasta ári. Hundurinn hét Samantha og hafði Streisand átt hana í fjórtán ár. Þriðji hvolpurinn, Miss Fanny, er ekki klón er er þó fjarskyldur hinum hvolpunum.



„Þeir hafa ólíka persónuleika. [...] Ég er að bíða eftir því að þeir verði eldri svo ég geti séð hvort þeir hafi brúnu augun og alvarleikann hennar.“



Í viðtalinu fór Streisand yfir víðan völl og sagði þar meðal annars að Donald Trump forseti Bandaríkjanna sé spilltur lygari. Þegar talið barst að #MeToo byltingunni og árangri safnana í kringum Time’s Up herferðina, sem hún tók þátt í sagði hún:



„Þetta er ótrúlegt,“ og bætti svo við að hún væri „virkilega stolt.“



Streisand segir að hún hafi ekki vitað af ofbeldisfullri hegðun framleiðandans Harvey Weinstein en átti samt sjálf slæma reynslu af honum, meðal annars frá opnunarkvöldi Brodway söngleiks hans, Finding Neverland.



„Hann vildi mæta þangað með mig á arminum og að ég myndi syngja lag á plötunni. Ég sagði nei.“



Streisand segir að eftir að hún hafnaði Weinstein hafi hann hagað sér heimskulega og meðal annars hótað að vinna ekki með henni að kvikmyndum í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.