Breska ríkisstjórnin hafnar tillögu ESB um Norður-Írland Kjartan Kjartansson skrifar 28. febrúar 2018 14:55 May forsætisráðherra gengur dúðuð út í bifreið í kuldanum sem nú gengur yfir Bretland. Á sama tíma andar köldu á milli breskra stjórnvalda og ESB. Vísir/AFP
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir að tillaga Evrópusambandsins um að Norður-Írland verði áfram hluti af innri markaði sambandsins eftir útgöngu Breta ógni „stjórnskipulegri einingu“ Bretlands. Hún segist ætla að lýsa andstöðu sinni við forsvarsmenn sambandsins. Evrópusambandið lagði fram drög að tillögu um að Írland í heild haldi áfram í regluverk þess eftir Brexit ef engin önnur lausn finnst. Það þýddi í raun að Norður-Írlandi yrði áfram hluti af innri markaði Evrópusambandsins, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Markmiðið væri að koma í veg fyrir að koma þyrfti upp landamæraeftirlit á mörkum Írlands og Norður-Írlands. Slíkt er talið geta ógnað friði sem ríkt hefur síðustu tvo áratugina.Grefur undan sameiginlegum markaði BretlandsMay segir hins vegar að enginn forsætisráðherra Bretlands gæti fallist á tillögu sem þessa. Hún grafi undan sameiginlegum markaði Bretlands og ógni einingu þess. Hún sagði þingmönnum í dag að hún myndi gera sambandinu afstöðu sína „kristalskýra“. Óeining hefur ríkt á Bretlandi um hvernig haga skuli sambandi landsins við Evrópu eftir aðskilnaðinn sem er fyrirhugaður á næsta ári. Nigel Dodds, leiðtogi flokks sambandssinna á Norður-Írlandi sem ver minnihlutastjórn Íhaldsflokksins falli, furðar sig á að leiðtogar Evrópusambandsins hafi lagt slíka tillögu fram. „Við yfirgáfum ekki Evrópusambandið til þess að hafa umsjón með sundrun Bretlands,“ segir Dodds sem telur að það yrði hörmulegt fyrir Norður-Íra að rjúfa tengslin við breskan markað.
Brexit Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira