Valdís Þóra úr leik í Ástralíu Magnús Ellert Bjarnason skrifar 10. febrúar 2018 10:45 LET/Tristan Jones
Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir var grátlega nálægt því að komast í gegnum niðurskurðinn á Actewagl Canberra Classic mótinu í Ástralíu en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi. Aðeins munaði einu höggi að hún fengi að halda áfram leik á mótinu. Valdís lék á þremur höggum yfir pari fyrsta hringinn en annar hringurinn var mun betur leikinn hjá henni. Spilaði hún hann á einu höggi undir pari, fékk þrjá fugla, 13 pör og aðeins tvö skolla. Evrópumótaröðin er stutt á veg komin þetta ár, en þetta er einungis annað mótið sem spilað er. Valdís hafnaði í 53. sæti í fyrsta mótinu sem einnig fór fram í Ástralíu, um síðustu helgi. Heimakylfingurinn Minjee Lee leiðir mótið sem stendur, en hún spilaði ótrúlegt golf í nótt, fór hringinn á 63 höggum og er 14 höggum undir pari.
Golf Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Fótbolti LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Körfubolti Elliði segir HM ekki í hættu Handbolti Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira