Þær Áslaug Jónsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Unnur Jökulsdóttir hlutu í kvöld Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2017. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í kvöld.
Kristín Eiríksdóttir hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsögu sína Elín, ýmislegt. Þá hlaut Áslaug Jónsdóttir verðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka, ásamt Rakel Helmsdal og Kalle Güettler, fyrir bókina Skrímsli í vanda. Unnur Jökulsdóttir bar svo sigur úr býtum í flokki fræðirita og bóka almenns efnis fyrir bókina Undur Mývatns: Um fugla, flugur, fiska og fólk.
Þetta er í 29. sinn sem Íslensku bókmenntaverðlaunin eru haldin en það hefur aðeins einu sinni gerst áður að konur hljóti verðlaunin í öllum flokkum, eða árið 1994. Þá vekur athygli að Ingibjörg Haraldsdóttir, rithöfundur og móðir Kristínar Eiríksdóttir, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2002 fyrir bók sína Hvar sem ég verð. Þær mæðgur eru því handhafar sömu verðlauna.
Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda. Verðlaunaverkin voru valin af fjögurra manna lokadómnefnd en í desember á síðasta ári voru fimm bækur tilnefndar í hverjum flokki.
Lokadómnefndina skipuðu Helga Ferdinandsdóttir, Hulda Proppé, Sigurjón Kjartansson og Gísli Sigurðsson, sem gegndi stöðu formanns nefndarinnar.
Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna þann 1. desember síðastliðinn:
Fræðirit og bækur almenns efnis:
Karl Aspelund og Terry Gunnell, ritstjórar
Málarinn og menningarsköpun: Sigurður Guðmundsson og Kvöldfélagið 1858-1874
Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands og Bókaútgáfan Opna
Steinunn Kristjánsdóttir
Leitin að klaustrunum: Klausturhald á Íslandi í fimm aldir
Útgefandi: Sögufélag í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands
Sumarliði R. Ísleifsson, ritstjóri
Líftaug landsins: Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-2010
Útgefandi: Skrudda
Unnur Þóra Jökulsdóttir
Undur Mývatns: -um fugla, flugur, fiska og fólk
Útgefandi: Mál og menning
Vilhelm Vilhelmsson
Sjálfstætt fólk: Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld
Útgefandi: Sögufélag
Dómnefnd skipuðu:Hulda Proppé, formaður nefndar, Knútur Hafsteinsson og Þórunn Sigurðardóttir.
Barna- og ungmennabækur:
Áslaug Jónsdóttir, Rakel Hemsdal og Kalle Güettler
Skrímsli í vanda
Útgefandi: Mál og menning
Elísa Jóhannsdóttir
Er ekki allt í lagi með þig?
Útgefandi: Vaka-Helgafell
Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring
Fuglar
Útgefandi: Angústúra
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Vertu ósýnilegur: Flóttasaga Ishmaels
Útgefandi: Mál og menning
Ævar Þór Benediktsson
Þitt eigið ævintýri
Útgefandi: Mál og menning
Dómnefnd skipuðu:Sigurjón Kjartansson, formaður nefndar, Hildigunnur Sverrisdóttir og Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir.
Fagurbókmenntir:
Bergþóra Snæbjörnsdóttir
Flórída
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa
Jón Kalman Stefánsson
Saga Ástu
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa
Kristín Eiríksdóttir
Elín, ýmislegt
Útgefandi: JPV útgáfa
Kristín Ómarsdóttir
Kóngulær í sýningargluggum
Útgefandi: JPV útgáfa
Ragnar Helgi Ólafsson
Handbók um minni og gleymsku
Útgefandi: Bjartur
Dómnefnd skipuðu:Helga Ferdinandsdóttir, formaður nefndar, Bergsteinn Sigurðsson og Steingrímur Þórðarson.
Áslaug, Kristín og Unnur handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna

Tengdar fréttir

Handhafar gullmiðans annó 2017
Tilnefningar til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna liggja fyrir.