Bíó og sjónvarp

Fyrsta stiklan úr Fullum vösum: Hvat­vísir spennu­fíklar ræna hættu­legasta manni landsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron Már, Hálmar Örn, Egill Ploder og Nökkvi Fjalar ætla sér að ræna banka í kvikmyndinni Fullir Vasar.
Aron Már, Hálmar Örn, Egill Ploder og Nökkvi Fjalar ætla sér að ræna banka í kvikmyndinni Fullir Vasar.
„Þetta er allt öðruvísi en maður gerir sér grein fyrir, þegar ég er að leika á sviði fer maður með allt leikritið á einu bretti og getur komið sér þannig betur inn í hlutverkið en í bíó þarf maður að að læra eina og eina senu fyrir hvern tökudag og oft þurfti maður að setja sig í aðstæður aftur og aftur,“ segir Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem AronMola, sem fer með eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni Fullir Vasar sem frumsýnd verður í næsta mánuði hér á landi.

Fullir Vasar fjallar um fjóra menn sem ræna banka til að eiga fyrir tugmilljóna skuldum eins þeirra við hættuleg­asta mann Íslands og fer þá af stað atburðarás sem enginn sá fyrir.

Snjallsímakynslóðin þekkir leikarana vel

Þó að aðalleikarar myndarinnar séu flestum landsmönnum góðkunnir, og þá sérstaklega snjallsímakynslóðinni, þá er þetta frumraun þeirra flestra á hvíta tjaldinu. Hjálmar Örn Jóhannsson, snappari og skemmtikraftur, fer með aðalhlutverk myndarinnar en í stærstu hlutverkunum auk hans eru Aron Már og Áttumennirnir Egill Ploder Ottósson og Nökkvi Fjalar Orrason. Allir eiga þeir það sameiginlegt að vera meðal vinsælustu Íslendinganna á Snapchat.

„Maður þarf að passa upp á svo marga hluti leiklega séð í bíómyndum. En samt sem áður var þetta mjög skemmtilegt og það var mjög góður andi á setti sem ég held að sé mjög dýrmætt,“ segir Aron sem hefur leikið áður á sviði í leikritum fyrir Verslunarskóla Íslands og hefur hann verið við nám á Leiklistarbraut í Listaháskóla Íslands.

Hjálmar í senu með Aroni.
„Þetta er grín hasarmynd sem fjallar um nokkra menn sem þjást af rosalegri hvatvísi og spennufíkn. Þeir koma sér í allskonar vesen til þess eins að ræna banka.“

Eignaðist barn í síðustu viku

Aron varð faðir í fyrsta sinn í síðustu viku þegar hann og Hildur Skúladóttir eignuðust lítinn dreng.

„Föðurhlutverkið er held ég bara eins og það á að vera ólýsanlegt og spennandi. Fæðingin gekk bara mjög vel.“

„Það var frábær reynsla og ekki líkt neinu sem ég hef prufað áður, mun meiri vinna en mig grunaði,“ segir Hjálmar Örn Jóhannsson, um vinnuna í kringum kvikmyndina.

„Það var magnað að fá að leika á móti Ladda sem var mín grín hetja þegar ég var ungur, það má segja að maður hafi orðið „starstruck“ þegar hann mætti,“ segir Hjálmar en Laddi leikur nokkuð stórt hlutverk í kvikmyndinni.

„Þetta er svona blanda af spennu og gríni en með meiri áherslu á grín myndi ég segja,“ segir Hjálmar að lokum.

Hér að neðan má sjá fyrsta brotið úr Fullum Vösum sem frumsýnd verður þann 23. febrúar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.