En fram að þeim tónleikum er „löng uppbygging“, eins og Gunnar Karel orðar það.
„Dagskráin byrjar með innsetningu í Gallerí porti með Jennifer Torrence og Trond Reinholdtsen. Það er líka gjörningur, svona lifandi verk, en fyrsta atriðið í Hörpunni er leikur Elblaska kammersveitarinnar í Kaldalóni klukkan 17, Ungsveit Sinfóníunnar með söngvurum úr Listaháskólanum tekur síðan við. Svo ljúkum við kvöldinu með tónleikum sem nefnast After Still Park, þar er japönsk tónlist í bland við nýja frumsamda, bara til að róa mannskapinn svo hann verði klár í slaginn á morgun.“

„Barnadagskráin er öll í Iðnó og líka tónleikar Riot Ensemble sem ég mundi telja einn af hápunktum Myrkra, sveitin er ein af þekktari samtímahljómsveitum Bretlands og er gestur okkar á hátíðinni í ár og mun meðal annars frumflytja áhugavert verk eftir Báru Gísladóttur,“ lýsir Gunnar Karel.
Glæný barnaópera eftir Hildigunni Rúnarsdóttur verður frumflutt í Iðnó á laugardaginn, byggð á ævintýrinu Gilitrutt. Þann dag verður Norræna húsið vettvangur tónlistar eftir yngri kynslóð tónskálda, bæði íslenskra og skandinavískra, að sögn Gunnars Karels.
„Fyrstu flytjendur þar eru Pass Part Two, ítalskt-norskt dúó sem flytur skandinavískt verk,“ segir hann og heldur áfram: „Þrjár ungar konur sem kalla sig Hlökk verða í Svarta boxinu í Norræna. Þær blanda saman tónlist, myndlist og ritlist og flytja meðal annars verk fyrir Huldu sem er nýtt ljósa- og strengjahljóðfæri sem ein þeirra bjó til, þarna er mikil frumsköpun á ferð. Stirni Ensemble kemur líka fram, þar eru Íslendingar sem hafa tengingar til Hollands, þannig að við fáum verk eftir Hollendinga og líka ný íslensk eftir Bergrúnu Snæbjörnsdóttur og Sigrúnu Jónsdóttur.“
Um kvöldið er Íslandsfrumflutningur á verki eftir Hilmar Þórðarson í flutningi Trondheim Sinfonietta í Norðurljósum Hörpu. Á sama stað verða tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur og Elblaska. Meðal annars frumflytja kammersveitirnar saman nokkurra áratuga gamalt verk eftir Atla Heimi, illskiljanlegt en samt einfalt, að sögn Gunnars Karels sem segir tónskáldið feta þar ótroðna slóð.
Annars er dagskráin öll á darkmusicdays.is.