Makedónar gefa flugvelli nýtt nafn Atli Ísleifsson skrifar 29. janúar 2018 13:39 Grikkir hafa verið óánægðir með að Makedónar hafi reynt að eigna sér persónur og tákn sem ætíð hafa verið talin hluti af arfleifð Grikkja. Vísir/Getty
Stjórnvöld í Makedóníu hafa ákveðið að gefa einum af flugvöllum landsins nýtt nafn til að liðka fyrir lausn í langvinnri deilu Makedóna og Grikkja. Zoran Zaev, forsætisráðherra Makedóníu, greindi frá því í síðustu viku að Flugvöllur Alexanders mikla í höfuðborginni Skopje muni fá nýtt nafn. Enn hefur þó ekki verið tekið ákvörðun um hvert nýtt nafn vallarins verður. Makedónar munu sömuleiðis endurnefna hraðbrautina í landinu sem kennd er við Alexander mikla. Hraðbrautin nær að landamærum Grikklands og mun hún framvegis nefnast Vegur vináttunnar, segir Zaev. Allt frá því að Makedónía lýsti yfir sjálfstæði frá gömlu Júgóslavíu árið 1991 hefur nafnið á landinu farið fyrir brjóstið á Grikkjum sem vilja meina að Makedónía nái einungis til samnefnds héraðs í Grikklandi. Sömuleiðis hafa Grikkir verið óánægðir með að Makedónar hafi reynt að eigna sér persónur og tákn sem ætíð hafa verið talin hluti af arfleifð Grikkja. Zaev greindi frá ákvörðuninni í kjölfar fundar með gríska forsætisráðherranum Alexis Tsipras í Davos í Sviss. Væri þetta skýrt merki um að Makedónar væru staðráðnir í að finna lausn á deilunni, sem hefur einnig tafið aðildarferli Makedóna að Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu (NATO).
Evrópusambandið Norður-Makedónía Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira