Gríðarleg tilhlökkun vegna afmælis Davíðs Jakob Bjarnar skrifar 16. janúar 2018 15:25 Aðdáendur Davíðs og velunnarar eiga erfitt með að leyna eftirvæntingu sinni en stóri dagurinn er á morgun.
Öflugasti stjórnmálamaður seinni tíma verður sjötugur á morgun. Hvar sem menn standa í pólitíkinni er það óumdeilanlegt að ferill hans er magnaður og verður seint toppaður: Leikskáld, ritari LR, borgarstjóri, forsætisráðherra, utanríkisráðherra, Seðlabankastjóri og nú ritstjóri Morgunblaðsins. Fáir ef nokkur hafa skráð nafn sitt jafn feitu letri í stjórnmálasögu landsins og Davíð Oddsson.Er ekki ráð að flagga?Á morgun mun Davíð ná þeim merka áfanga að verða sjötugur. Og eiga helstu aðdáendur hans erfitt með að leyna tilhlökkun sinni og spenningi. Stjórnandi hóps sem finna má á Facebook og heitir „Davíð og arfleifðin“, Sveinn Óskar Sigurðsson bendir á þessa staðreynd og spyr: „Væri ekki ráð að flagga honum til heiðurs?“ Vel er spurt. Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor hlýtur að teljast meðal helstu aðdáenda Davíðs og hann segir á sinni Facebooksíðu: „Tímamót hjá góðum vini á morgun,“ og tengir við tilkynningu sem birtist í Morgunblaðinu í morgun þar sem greinir frá því að Árvakur, útgáfufélag blaðsins, ætli að efna til sérstaks afmælisfagnaðar í tilefni dagsins.Okkar allra besti maðurGeir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, leggur orð í belg á síðu Hannesar: „Heill höfðingja vorum. Stórmerkur samtíðarmaður á góðum tímamótum. Held bara að hann yngist með hverju árinu. Innilega til hamingju.“ Það gerir Júlíus Hafstein sendiherra einnig: „Forustumaðurinn. Hamingjuóskir.“ En, Júlíus var einmitt skipaður sendiherra í skammvinnri tíð Davíðs í utanríkisráðuneytinu, ásamt tíu öðrum. Nú, Stefán Friðrik Stefánsson er ákaflega flokkshollur Sjálfstæðismaður og hann leggur þetta í púkkið: „Okkar besti maður - alvöru leiðtogi.“ Og vonandi verður nú enginn til að skilja orð Stefáns Friðriks svo, í ljósi þess að merking þrífst á andstæðu sinni, að núverandi formaður sé það ekki.Enginn maður jafn sigursæll og vinsællHermann Guðmundsson fyrrverandi forstjóri, á einnig erfitt með að leyna tilhlökkun sinni og birtir á sinni Facebooksíðu pistil þar sem hann skautar yfir feril Davíðs: „Enginn maður hefur verið umdeildari á Íslandi s.l. ár. Ferill sem spannar 9 ár í stól borgarstjóra og 13 ár sem forsætisráðherra auk árs í Utanríkisráðuneytinu er ævistarf sem flestir gætu verið sáttir við. Enginn maður hefur verið sigursælli og vinsælli í íslenskum stjórnmálum samtímans en enginn hefur verið jafn umdeildur og jafnvel hataður á köflum. Hvað sem menn um hann segja hefur enginn getað efast um að efst í huga hans hafa ávallt verið hagsmunir þjóðar og ríkissjóðs hvort sem allt heppnaðist vel eða ekki. Nú á Davíð Oddsson sjötugsafmæli á morgun, það er stór áfangi sem vert er að fagna og líklega fatta margir ekki fyrr en of seint hversu mikilvægur og gagnlegur ferill hans var fyrir land og þjóð þegar á heildina er litið.“ Ýmsir taka undir með Hermanni, þeirra á meðal Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður sem þarf ekki að hafa mörg orð til að komast beint að kjarna hvers máls: „Flottur“.Mun Davíð hætta á Mogganum?Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvort Davíð muni, í ljósi þessara tímamóta, láta af störfum sem ritstjóri Morgunblaðsins. Ekkert hefur komið fram þar um en reglur Árvakurs kveða á um að þegar menn hafi náð þeim aldri skuli þeir láta af störfum. Vísir gerði tilraun til að ná tali af Haraldi Johannessen, samritstjóra Davíðs á Morgunblaðinu og framkvæmdastjóra, en án árangurs. Þá hefur Haraldur ekki svarað fyrirspurn Vísis. Hún fer hér á eftir en Vísir vill nota tækifærið, taka forskot á sæluna og bætast þar með í hóp aðdáenda hans og óska Davíð til hamingju með daginn á morgun.Fyrirspurn til HaraldsHeill og sæll Haraldur!Ég heiti Jakob Bjarnar og er blaðamaður á Vísi. Ég var að reyna að ná í þig símleiðis en þú varst ekki til svara skv. konunni á símanum sem benti mér á að best væri að skjóta á þig tölvupósti. Sem ég þá geri hér með.Þannig er að ég rek í það augu víða á netinu, á samfélagsmiðlum, vangaveltur um hvort verði breytingar í yfirstjórn Morgunblaðsins nú í vikunni þá vegna þess að Davíð Oddsson, meðritstjóri þinn, verður 70. Er þar vísað í reglur Árvakurs sem kveða á um að þegar menn ná þeim aldri láti þeir af störfum, en svo mun til dæmis hafa verið með forvera ykkar í starfi, þá Styrmi og Matthías.Því er einfaldlega spurt:a) Mun Davíð hætta nú í vikunni?b) Ef ekki, hvenær er gert ráð fyrir því að hann láti af störfum?c) Verður einhver sérstakur viðbúnaður á Morgunblaðinu vegna þessa stórafmælis; afmælisgreinar og/eða önnur umfjöllun? Og er ég þar með í huga hvort það setji ykkur hugsanlega í þrönga stöðu ákvæði siðareglna um að ekki beri að fjalla um sig sjálfan?Allra bestu kveðjur með von um skjót svör,Jakob
Fjölmiðlar Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira