„Þið eruð þau fyrstu til að sjá myndina,“ hrópaði leikstjóri myndarinnar, Rian Johnson, yfir salinn. Þegar hann spurði hvort áhorfendur væru tilbúnir að horfa á myndina mátti heyra gífurleg fagnaðarlæti.
Viðburðinum eru gerð góð skil á vef Mashable en þar segir að áhorfendur hafi verið sjáanlega slegnir eftir áhorfið, myndin hafi verið svo frábær.

Anthony Brenican, sem starfar hjá Entertainment Weekly, segir Carrie Fisher, í hlutverki Leiu prinsessu, frábæra og sömuleiðis Mark Hamill, í hlutverki Loga Geimgengils.
Ryan Parker, hjá Hollywood Reporter, segir myndina undraverða og segir Erik Davis, kvikmyndarýnir á vefnum Fandango, að myndin sé algerlega stórkostleg, grípandi, hjartnæma, fyndna og áhrifaríka.
Myndin er framhald af sjöundu Stjörnustríðsmyndinni, The Force Awakens, og segir frá ævintýrum stormsveitarmannsins fyrrverandi Finn sem hvar frá villu síns vegar í fyrri The Force Awakens, Rey sem er í þjálfun hjá Loga Geimgengli, og illmenninu óstöðuga Kylo Ren.
Gagnrýnandi Los Angeles Times, Jen Yamato, segir myndina vera frábæra, fyndna og koma á óvart en Scott Mantz hjá Access Hollywood var fremur varfærinn í sinni umsögn þegar hann sagði myndina „of langa“ og sérstaklega langdregna um miðbik hennar.