Bíó og sjónvarp

Netflix notendur horfðu á milljarð klukkustunda af efni á viku

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Mexíkóbúar eru duglegastir á Netflix
Mexíkóbúar eru duglegastir á Netflix Vísir/Getty
Það er auðvelt að missa sig í sjónvarpsáhorfi, sérstaklega á streymisveitum þar sem heilu sjónvarpsseríurnar eru aðgengilegar samdægurs.

Það ætti því ekki að koma mörgum á óvart að jarðarbúar horfðu mjög mikið á Netflix á árinu sem er að líða. Um það bil 140 milljónir klukkustunda af myndefni á dag, nánar tiltekið. Það mu samsvara einum milljarði klukkustunda á viku.

Vinsælasti dagur ársins var jafnframt sá fyrsti, 1. janúar. Mexíkóbúar virðast vera duglegustu Netflix notendurnir og horfði meðal Netflix-notandinn á sextíu kvikmyndir á Netflix á þessu ári.

Þá var einhver einn notandi sem horfði á þættina Shameless á Suðurskautslandinu og annar horfði á Pirates of the Caribbean: The Curse of the Black Pearl 365 daga í röð.

Netflix hefur tekið saman nokkra lista yfir vinsælasta efnið á árinu.

Þættirnir sem við tættum í okkur árið 2017

Hér er um að ræða þætti sem fólk einfaldlega gat ekki hætta ð horfa á og horfði á meira en tvær klukkustundir af á dag. 

1. American Vandal

2. 3%

3. 13 Reasons Why

4. Anne with an E

5. Riverdale

6. Ingobernable

7. Travelers

8. The Keepers

9. The OA

10. The Confession Tapes

Þættirnir sem við nutum þess að horfa á

Hér er um að ræða þætti sem fólk passaði að klára ekki í einum rykk heldur passaði sig að horfa ekki á meira en tvær klukkustundir af á dag.

1. The Crown

2. Big Mouth

3. Neo Yokio

4. A Series of Unfortunate Event

5. GLOW

6. Friends from College

7. Ozark

8. Atypical

9. Dear White People

10. Disjointed

Þættirnir sem við stálumst til að horfa á

Hér eru þættir sem fólk stalst til að horfa á án maka síns, skammarlaust. Óforskömmuð Netflix hegðun sem svarendur kannanar Netflix játa á sig.

1. Narcos

2. 13 Reasons Why

3. Stranger Things

4. Orange is the New Black

5. Sense8

6. Black Mirror

7. Marvel's The Defenders

8. Marvel's Iron Fist

9. Ozark

10. MINDHUNTER

Þættirnir sem sameinuðu okkur

Að lokum eru það þættirnir sem fólk naut þess að horfa á saman. Hvort sem það var með fjölskyldu eða vinum. Eða makanum sem hélt að þú værir að sjá þáttinn í fyrsta skipti.

1. Stranger Things

2. 13 Reasons Why

3. A Series of Unfortunate Events

4. Star Trek Discovery

5. Gilmore Girls: A Year in the Life

6. Riverdale

7. Fuller House

8. Chef's Table

9. Atypical

10. Anne with E 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.