„Ég vel aðeins það besta frá hverjum framleiðanda og lækka frekar álagninguna heldur en að kaupa inn ódýrari vöru.“

Hann segir A. Smith ekki kaupa næst ódýrasta rúmfataefnið frá Kína eða Pakistan, líma nokkur íslensk blóm á þau og leggja síðan 1.000% álagningu ofan á. „Við seljum rúmföt sem eru úr allra bestu og dýrustu satín- og damaskefnum sem til eru. Enda sofa viðskiptavinir okkar betur í gæðarúmfötum frá okkur.“

Hann nefnir sem dæmi vönduðu lúxusrúmfötin frá ítalska fyrirtækinu Quagliotti.
„Þetta er lítið fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað fyrir 80 árum. Þau leggja mikla áherslu á gæði og vönduð vinnubrögð og sjá t.d. bresku og norsku krúnunni fyrir dúkum og sængurfötum. Einnig selja þau til fjölmargra virkilega flottra hótela á borð við 101 Hotel í Reykjavík, Ritz í París, Armani Hotel í Mílanó, Caesars Palace í Las Vegas og The Mark Hotel í New York. Í gegnum árin hefur Quagliotti framleitt dúka og sængurföt sem seld hafa verið undir merkjum t.d. Gucci, Lacroix og Dior. Þegar aðeins það besta er nógu gott er því leitað til Quagliotti með rúmföt og dúka.“
Ítölsku rúmfötin kosta 13.900, 18.000, 22.900 og 33.700 kr. en einnig fást ódýrari 300-800 þráða rúmföt frá Kína á 6.900, 8.900 og 12.500 kr.

Einnig er boðið upp á vandaða sparidúka frá franska fyrirtækinu Le Jacquard Francais og frá Króatíu. „Í tilefni jólanna létum við framleiða sérstaklega fyrir okkur jólasveinadiskaþurrkur í tveimur litum, rauðar og grænar. Allir sem kaupa sængurföt eða dúka fá eina í jólagjöf frá okkur.“
Ásamt innflutningi á tilbúnum sængurfötum flytur þvottahúsið einnig inn hágæða damask- og satínefni frá Ítalíu. „Um er að ræða sex og sjö hundruð þráða damask- og satínefni úr langþráða egypskri bómull og bómull frá Perú. Fyrir tíu árum kynntist ég saumakonu sem saumaði mikið fyrir Fatabúðina. Hún er sérstaklega vandvirk og liðleg með sérpantanir og getur saumað allar stærðir og lök líka.“
Einnig er boðið upp á leigu á dúkum fyrir veislur og ráðstefnur. „Við erum með mesta úrvalið þegar kemur að stærðum og gerðum dúka. Einnig held ég að við séum líka ódýrust en bjóðum samt upp á nýja dúka sem eru sérframleiddir fyrir okkur í Króatíu.“

Viðskiptavinir þvottahússins eru tryggir að sögn Björns Þórs. „Það má segja að við séum í raun ódýr heimilishjálp enda koma margir með skyrtur, dúka og rúmfötin sín í hreinsun til okkar. Við höfum meira að segja tekið á móti þriðju kynslóð úr sömu fjölskyldum sem kemur til okkar með rúmfötin í hreinsun.“
Það var afi Björns Þórs sem stofnaði þvottahúsið árið 1946 sem varð því 70 ára á síðasta ári. „Afi stofnaði fyrirtækið og foreldrar mínir keyptu það af honum árið 1988 og ráku það saman þangað til pabbi lést árið 2001. Síðustu árin hef ég alfarið séð um daglegan rekstur en móðir mín sér um bókhaldið.“
Þvottahús A. Smith ehf. er á Bergstaðastræti 52 í Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna á www.damask.is.