Aldarminning Fitzgerald Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 23. nóvember 2017 09:30 "Ég er í útrás og því stend ég fyrir úthverfadjassi,“ segir Leifur. Mynd/Úr einkasafni
Prógrammið er tengt 100 ára afmælum, segir Leifur Gunnarsson, sem stendur fyrir tónleikum í Borgarbókasafninu í Gerðubergi Menningarhúsi í hádeginu á morgun milli klukkan 12.15 og 13. „Númer eitt er söngdívan Ella Fitzgerald, við ákváðum fyrst að flytja lögin sem hún gerði vinsæl. Hún er ekki skrifuð fyrir neinni tónlist sjálf en nokkrir þeirra sem hún söng eftir voru jafnaldrar hennar og við völdum efni úr smiðjum Thelonius Monk, Dizzy Gillespie og Tad Dameron. Þeir voru líka þekktir hljóðfæraleikarar innan djassheimsins.“ Leifur ætlar að spila á kontrabassa á tónleikunum og Andrés Þór á gítar en sú sem túlkar Ellu er Sara Blandon sem var nýlega titluð bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum í flokki djass og blús. Leifur er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar Jazz í hádeginu sem tónleikarnir falla undir. Hann kveðst hafa gaman af að segja frá því að yfirleitt séu tónleikar í þeirri röð utan póstnúmers 101. „Ég er í útrás og því stend ég fyrir úthverfadjassi. Á laugardaginn verðum við í Menningarhúsinu Spönginni í Grafarvogi milli klukkan 13.15 og 14 með sama prógramm og í Gerðubergi.“ Við höfum náð ansi fínum árangri með þessa seríu, það eru svona 200 manns sem fylgja okkur, við erum með yfir 200 á póstlista og það eru þeir sem skila sér aftur og aftur á tónleika. Ég byrjaði þetta fyrir fjórum árum í samstarfi við Gerðuberg, síðan urðu skipulagsbreytingar þannig að menningarstarfið þar heyrir undir Borgarbókasafnið. Þá fór ég að fara á fleiri staði. Mig dreymir um að komast á einn stað í viðbót með þetta efni en það er ekki frágengið. Nú er ég bara að láta mig dreyma upphátt.
Menning Mest lesið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Heillandi arkitektúr í Garðabæ Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Lífið Die Antwoord og M.O.P. ásamt fleirum á Secret Solstice Lífið Velti mér ekki upp úr vandamálum Lífið Fleiri fréttir Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira