Áttunda Stjörnustríðsmyndin verður um tveir og hálfur klukkutími að lengd. Breska kvikmyndaeftirlitið greinir frá lengd The Last Jedi á vef sínum en þar kemur fram að áhorfendur megi búast við „hóflegu“ ofbeldi í myndinni.
Myndin verður 151 mínúta og 38 sekúndur að lengd sem gerir hana að þeirri lengstu í Stjörnustríðsbálkinum, rúmlega níu mínútum lengri en sú mynd sem átti metið.
Röðin lítur því svona út:
1. The Last Jedi: 151 mínúta
2. Attack of the Clones: 142 mínútur
3. Revenge of the Sith: 140 mínútur
4. The Force Awakens: 135 mínútur
5 og 6: The Phantom Menace og Rogue One: Báðar 133 mínútur
7. Return of the Jedi: 132 mínútur
8. The Empire Strikes Back: 124 mínútur
9. A New Hope: 121 mínúta.
Á vef Mashable er farið ítarlega yfir málið en þar kemur er því velt upp hvort að myndin muni þola svo langan sýningartíma, að hún verði hreinlega langdregin.
Mashable bendir á að Kathleen Kennedy, sem stjórnar öllu hjá Lucasfilm sem framleiðir Stjörnustríðsmyndirnar, sé frekar ánægð með störf leikstjóra The Last Jedi, Rian Johnson, þar sem hún hefur nú þegar ráðið hann til að leikstýra Stjörnustríðsþríleik.
Þá er bent á að andlát leikkonunnar Carrie Fisher gæti hafa haft þau áhrif að ákveðið var að lengja myndina umtalsvert til að gefa persónu hennar, Leiu prinsessu, meira vægi í myndinni en til stóð.
The Last Jedi verður frumsýnd hér á landi 14. desember næstkomandi.
The Last Jedi verður sú lengsta í Stjörnustríðsbálknum

Tengdar fréttir

Sjáðu nýjustu stikluna fyrir næstu Star Wars-mynd
Ný stikla fyrir áttundu Star Wars myndina, The Last Jedi, var frumsýnd í bandarísku sjónvarpi í gærkvöldi.

Ný Stjörnustríðskitla
Í kitlunni var blandað saman efni sem hefur sést áður úr áttundu Stjörnustríðsmyndinni, The Last Jedi, ásamt áður óséðu efni,

Nokkrar vangaveltur um The Last Jedi stikluna
Ný Star Wars stikla hefur litið dagsins ljós og eins og svo oft áður, þá fylgja henni fjölmargar spurningar.

Enn einn Star Wars þríleikurinn væntanlegur
Rian Johnson, leikstjóri og handritshöfundur Star Wars: The Last Jedi, mun gera þrjár Stjörnustríðsmyndir í viðbót.

Stjörnustríðsgetgátum rignir yfir netið
Einn af leikurunum ræddi þær í viðtali í dag.