Lífið

Rapparinn Lil Peep er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Lil Peep.
Lil Peep. Vísir/Getty
Bandaríski rapparinn Lil Peep lést í gær, 21 árs að aldri. Þetta hefur Guardian eftir útgefanda rapparans.

Enn liggur ekki fyrir um hvað hafi dregið Lil Peep til dauða, en fjölmiðlar höfðu áður greint frá því að rapparinn hafi verið fluttur á sjúkrahús eftir að hafa neyttof stórs skammts eiturlyfja. 

Lil Peep hét Gustav Åhr réttu nafni og ólst upp í New York. Hann gaf út sína fyrstu plötu, Come Over When You’re Sober (Part One), fyrr á þessu ári en hafði lengi glímt við fíkniefnadjöfulinn og andleg veikindi.

Bella Thorne, sem áður var kærasta Lil Peep, og fjöldi tónlistarmanna hafa minnst hans á samfélagsmiðlum í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.