Enginn betri en Elvar Örn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2017 06:00 Erfitt hefur verið að stoppa Elvar Örn Jónsson í Olís-deild karla í vetur. Hér sést hann í endurkomusigrinum á Aftureldingu á dögunum. vísir/eyþór
Draumur handboltaáhugamanna á Íslandi um alvöru tölfræði í úrvalsdeildinni hefur loksins ræst og við á íþróttadeild Fréttablaðsins ætlum í dag að kafa aðeins nánar í hvaða leikmenn hafa skarað framúr í byrjun tímabilsins í Olís-deild karla. Seinni bylgjan á Stöð 2 Sport nældi sér í góðan liðstyrk í haust þegar hún fékk HB Statz til liðs við sig. Tölfræðin hefur verið stór þáttur í umfjölluninni í vetur en það er líka gaman að skoða stöðu mála í tölfræðinni nú þegar öll liðin hafa spilað sjö leiki. Hjá HB Statz er frammistöðumat og þar má sjá hver hefur verið besti leikmaðurinn á fyrsta þriðjungi deildarkeppninnar. Tveir efstu menn eru jafnir fram í þriðja aukastaf en þá greinir loks á milli þeirra. Báðir voru þeir valdir í landsliðshópinn á móti Svíum þótt þeir séu á sitthvorum endanum á landsliðsferli sínum.Elvar er með 8,39 í meðaleinkunn hjá HB Statz.vísir/stefánFarið mikinn í sigurgöngunni Elvar Örn Jónsson er aðeins 20 ára gamall en hann hefur farið mikinn með Selfossliðinu til þessa á tímabilinu. Selfyssingar hafa unnið þrjá leiki í röð og alls fimm af síðustu sex leikjum sínum í Olís-deildinni. Frammistaða Elvars hefur þar skipt öllu máli, ekki síst í mörgum endurkomum liðsins á lokamínútum leikjanna. Elvar er með 8,39 í meðaleinkunn fyrir frammistöðu sína í fyrstu sjö leikjunum. Hann er sjötti markahæsti maðurinn með 6,7 mörk í leik en er enn fremur í sjöunda sætinu í stoðsendingum með 3,1 að meðaltali. Elvar er alls að skapa 4,9 skotfæri fyrir félaganna í hverjum leik. Það er mjög góð skotnýting (65 prósent) og fáir tapaðir boltar (1,3 í leik) sem skila honum síðan upp í efsta sætið á einkunnalistanum. Elvar er, auk þess að vera með bestu einkunnina fyrir sóknarleikinn, einnig í 5. sæti yfir bestu frammistöðuna í varnarleiknum. Þar er aftur á móti Víkingurinn Ægir Hrafn Jónsson í efsta sæti og sá eini sem er með yfir átta í meðaleinkunn fyrir varnarleik sinn. Því miður gat Elvar Örn ekki tekið þátt í landsleikjunum við Svía vegna bakmeiðsla og þá er óvissa um hvort að hann spili eitthvað næstu vikurnar. Þá kannski fyrst sjáum við mikilvægi hans fyrir Selfossliðið.Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll hefur verið frábær í upphafi tímabils.vísir/antonHaukar eiga næstu tvo Haukar eiga leikmennina í öðru og þriðja sæti listans. Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson er rétt á eftir Elvari en hann er aftur á móti með nokkra yfirburðastöðu meðal markvarða deildarinnar. Björgvin Páll var stórkostlegur í fyrstu leikjunum með Haukaliðinu og hefur verið efstur í einkunnagjöf HB Statz nær allt tímabilið. Björgvin Páll er búinn að verja 15,0 skot að meðaltali eða 40,5 prósent skota sem hafa komið á hann. Hann hefur alls varið sex víti og þá vekur sérstaka athygli að hann hefur gefið alls ellefu stoðsendingar fram á félaga sína í hraðaupphlaupum. Björgvin Páll hefur síðan skorað tvö mörk sjálfur.Bestu leikmenn Olís-deildar karla það sem af er tímabili.Á topp þrjú á báðum stöðum Þriðji á einkunnalistanum er síðan Daníel Ingason úr Haukum sem er jafnframt sá eini sem er inni á topp þrjú í bæði sóknarleik og varnarleik. Daníel er markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Gróttumanninum Max Jonsson en báðir hafa þeir skorað 56 mörk eða 8,0 mörk að meðaltali í leik. Daníel er líka í öðru sæti yfir þá sem oftast hafa náð að stöðva andstæðingana löglega í vörninni. Aðeins Valsmaðurinn Alexander Örn Júlíusson er á undan honum. Efsti maður toppliðs FH-inga á listanum er Einar Rafn Eiðsson í fjórða sætinu en hann er sá síðasti af leikmönnum deildarinnar sem eru með hærra en átta í meðaleinkunn. Einar Rafn er þriðji í stoðsendingum (4,0 í leik) og sjöundi markahæsti leikmaður deildarinnar með 6 mörk að meðaltali í leik. Hér til hliðar má sjá topp tuttugu listann yfir bestu frammistöðuna til þessa og einnig hverjir hafa verið bestir í marki, í vörn og í sókn.
Olís-deild karla Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira