Tíu ára stúlku með heilalömun sleppt úr haldi innflytjendayfirvalda Kjartan Kjartansson skrifar 4. nóvember 2017 08:09 Landamæraverðir stöðvuðu stúlkuna þegar hún var í sjúkrabíl á leið í aðgerð fyrir tíu dögum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/AFP
Yfirvöld í Texas-ríki í Bandaríkjunum hafa sleppt mexíkóskri tíu ára gamalli stúlku með heilalömun sem kom ólöglega til landsins með móður sinni. Stúlkan var stöðvuð í sjúkrabíl á leið á sjúkrahús í síðasta mánuði. Mál Rosu Maríu Hernández hefur vakið hneykslan í Bandaríkjunum. Landamæraverðir leyfðu sjúkrabíl hennar að halda áfram með hana í aðgerð á gallblöðru í lögreglufylgd. Vopnaðir verðir biðu eftir að hún vaknaði eftir aðgerðina og tóku hana þá höndum. Stúlkunni var í kjölfarið haldið í miðstöð fyrir unga innflytjendur í San Antonio. Henni hefur nú verið sleppt til foreldra sinna en ekki er ljóst hvort að bandarísk yfirvöld ætli að vísa henni úr landi, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Frændi stúlkunnar sem var með henni á leiðinni á sjúkrahúsið segir að landamæraverðir hafi beitt fjölskylduna þrýstingi til að láta hana skrifa upp á skjöl um að stúlkan yrði send á sjúkrahús í Mexíkó. Fjölskyldan hafnaði því hins vegar. „Ég er móðir. Það eina sem ég vildi var að koma henni í aðgerðina sem hún þurfti á að halda,“ segir Felipa de la Cruz, móðir Rosu Maríu sem fór til Bandaríkjanna til að reyna að fá betri meðferð fyrir dóttur sína en hún átti kost á sunnan landamæranna. Ríkisstjórn Donalds Trump forseta aðhyllist harðlínustefnu í málefnum fólk sem hefur komið ólöglega til Bandaríkjanna. Fyrir utan að tala fyrir að reisa vegg á landamærunum að Mexíkó hafa brottvísanir fólks færst í aukana.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Sjá meira