Forval hönnunarverðlauna Íslands Ritstjórn skrifar 8. nóvember 2017 14:30 Myndir: Hönnunarverðlaun Íslands
Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt á morgun, þann 9. nóvember í IÐNÓ, en forvalið var tilkynnt í lok síðustu viku. Eitt þeirra verka munu hljóta Hönnunarverðlaun Íslands sem eru peningaverðlaun að verðmæti 1.000.000 króna. Einnig verður fyrirtæki veitt viðurkenningu fyrir Bestu fjárfestingu í hönnun, en nafn fyrirtækisins verður gefið upp á verðlaunaafhendingunni. Dagskráin hljóðar svo: 20:30- Húsið opnar21:00- Afhending Hönnunarverðlauna Íslands22:00- Babies Ball Allir eru velkomnir á þennan viðburð, en farið er fram á snyrtilegan klæðnað. Hér er forval dómnefndar: Einkenni listahátíðarinnar Cycle.Listahátíðin Cycle er skapandi vettvangur fyrir samtal tilraunakenndrar samtímatónlistar og myndlistar þar sem listamönnum gefst kostur á að ræða saman, gera tilraunir og læra hver af öðrum. Döðlur hönnuðu merki og heildarásýnd hátíðarinnar og sækja þar í hugmyndafræði hennar um hringrás hugmynda. Marshall-húsiðMarshall-húsið var upphaflega byggt árið 1948 sem síldarbræðsla er nýr vettvangur lista við gömlu höfnina í Reykjavík. Arkitektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason, eigendur Kurt og Pí stofunnar, hafa leitt hönnun verksins í samstarfi við ASK arkitekta. Reitir Workshop + Tools for CollaborationReitir Workshop er alþjóðlegt samstarfsverkefni þeirra Ara Marteinssonar hönnuðar og Arnars Ómarssonar myndlistarmanns. Leiðarvísirinn Reitir - Tools for Collaboration býður lesendum að stela hugmyndum vinnusmiðjanna og þróa áfram. Orlofhús BHM í BrekkuskógiÍ kjölfar samkeppni um hönnun orlofshúsa Bandalags háskólamanna í Brekkuskógi í Bláskógabyggð voru tvö þeirra byggð eftir hönnun PKdM árið 2015. Húsin einkennast af ríkri efniskennd með umlykjandi landslagsmótun, hlöðnum veggjum, kolaðri timburklæðningu og grasi grónu þaki. SaxhóllGígurinn Saxhóll er vinsæll ferðamannastaður í þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Í gegnum tíðina hafði myndast slóði sem með auknum ágangi ferðamanna var kominn að þolmörkum. Landslag fékk það verkefni að hanna varanlegan stíg sem takmarkaði umgang ferðamanna við ákveðið svæði.
Mest lesið Gullfoss og Geysir í aðalhlutverki hjá Mango Glamour „Lítur út eins og 75 ára gömul kona frá Miami.“ Glamour Nýr yfirhönnuður La Perla er með nýjar áherslur Glamour Beyonce mun koma fram á Grammy verðlaununum Glamour Marokkósk páskaveisla að hætti Oddnýjar Glamour Fatastíll Celine Dion vekur verðskuldaða athygli Glamour 19 ára Kate Moss auglýsir nýjan ilm Calvin Klein Glamour Þetta er dress vikunnar hjá Glamour Glamour Tæklum rigninguna með stæl Glamour Föt og fylgihlutir frá Beyonce Glamour