Danielle með þrefalda tvennu í stórsigri Stjörnunnar Kristinn Páll Teitsson skrifar 21. október 2017 16:30 Danielle Victoria Rodriguez átti enn einn stórleikinn með þrefalda tvennu. Vísir/Andri Marinó
Danielle Victoria Rodriguez fór gjörsamlega á kostum í sannfærandi 72-55 sigri Stjörnunnar gegn Snæfelli í 5. umferð Dominos-deildar kvenna en hún var með þrefalda tvennu ásamt því að stela fimm boltum í leiknum. Garðbæingar komu inn í leikinn á góðu skriði og tóku yfir leikinn strax í fyrsta leikhluta í Stykkishólmi. Breyttu þær stöðunni úr 2-6 í 30-10 á seinustu sjö mínútum leikhlutans, ótrúlegur 28-4 kafli. Sami frábæri varnarleikur var til staðar í öðrum leikhluta, þær héldu heimakonum í níu stigum og bættu um leið við forskot sitt. Tóku þær 29 stiga forskot inn í hálfleikinn, staðan 48-19, Stjörnunni í vil. Eitthvað virðist Ingi Þór Steinþórsson hafa náð að vekja til baráttuhug hjá sínum konum í hálfleik þar sem þær minnkuðu muninn niður í tuttugu stig á ný fyrir lokaleikhlutann. Bilið var hinsvegar allt of mikið og var fjórði sigur Stjörnunnar í röð aldrei í hættu í fjórða leikhluta þótt að heimakonum hafi tekist aðeins að laga stöðuna á lokamínútunum. Daniella var stigahæst hjá gestunum með 31 stig ásamt því að taka 14 fráköst, gefa 12 stoðsendingar og stela boltanum fimm sinnum. Samtals 52 framlagspunktar í leiknum. Hjá Snæfelli var Kristen Denise McCarthy stigahæst með sautján stig ásamt því að rífa niður átján fráköst en hún hitti aðeins úr sex af átján skotum sínum í leiknum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira