Segja að Brynjar hafi hrakið stúlkur úr Stjörnunni með þjálfunaraðferðum sínum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. október 2017 18:04 Brynjar Karl Sigurðsson. vísir/stefán
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar sendi frá sér ítarlega yfirlýsingu í dag vegna þjálfarans, Brynjars Karl Sigurðssonar. Ástæðan fyrir yfirlýsingunni er sú að Brynjar hefur tjáð sig á samfélagsmiðlum um ástæður þess að hann hætti sem þjálfari í barna- og unglingastarfi Stjörnunnar. Körfuknattleiksdeildin telur sig þurfa að svara því sem Brynjar hefur sett fram. Í yfirlýsingunni er Brynjar sakaður um harkalegar þjálfunaraðferðir hjá níu og tíu ára stúlkum. „Á þeim tíma sem Brynjar Karl þjálfaði hjá félaginu hraktist nokkur hópur stúlkna úr félaginu vegna þeirra aðferða sem einkenndu þjálfun hans. Svo virðist sem stúlkur sem eiga foreldra sem ekki voru í einu og öllu fylgjandi því, eða einfaldlega ekki í aðstöðu til, að setja körfuknattleiksiðkun 9-10 ára dóttur sinnar í forgang í fjölskyldulífinu hafi lent hvað verst í þjálfaranum,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. „Því miður hafði þetta mikil áhrif á sumar stúlkurnar enda átti hann til að taka reiðilestur yfir einstökum stúlkum á æfingum fyrir framan aðra iðkendur. Við höfum undir höndum bréf frá foreldri sem er átakanlegt að lesa þar sem upplýst er um áhrif þjálfunaraðferða Brynjars á barnið.“ Síðar í yfirlýsingunni er greint frá því að á fundi í byrjun maí hafi verið ákveðið að framlengja ekki samningi við Brynjar sem rann út í júní. Stjarnan sakar svo Brynjar um að hafa farið að vinna fyrir annað félag á meðan hann var enn samningsbundinn Stjörnunni. Stjörn körfuknattleiksdeildar biður svo iðkendur og foreldra innilega afsökunar á framferði þjálfarans.
Körfubolti Mest lesið Átta leikmenn Túnis féllu á lyfjaprófi Fótbolti Ronaldo tárvotur eftir leik: „Við unnum fyrir Diogo“ Fótbolti Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Íslenski boltinn Argentína - Grænhöfðaeyjar | Davíð mætir Golíat Fótbolti Egyptaland brást ekki bogalistin í vítaspyrnukeppninni Fótbolti Bandarísk borg setur á útgöngubann eftir leik Grænhöfðaeyja Fótbolti Átti Amin að sjá rautt? Íslenski boltinn Dómari útskýrir af hverju Messi slapp en Balogun fékk rautt Fótbolti Haaland útskýrir kossinn Fótbolti Tæknin kom Portúgal til bjargar og endaði drauma Króata Fótbolti Fleiri fréttir Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Sjá meira