Braut þjálfari Skallagríms reglur eftir að hann var rekinn út út húsi í gær? | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2017 15:30
Þjálfari kvennaliðs Skallagríms hélt áfram að koma skilaboðum til síns liðs þrátt fyrir að dómarar leiksins væru búinn að reka hann út úr húsi. Ricardo Gonzalez, þjálfari kvennaliðs Skallagríms, byrjaði ekki þjálfaraferill sinn á Íslandi vel en hann var rekinn út úr húsi í fyrsta leik sínum í Keflavík í gær. Ricardo Gonzalez stýrði þá Skallagrímsliðinu á móti Keflavík í Meistarakeppni KKÍ. Skallagrímskonur steinlágu með tuttugu stigum í leiknum, 93-73, en Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur höfðu mikla yfirburði í leiknum. Ricardo Gonzalez var ekki ánægður með dómara leiksins í upphafi seinni hálfleiks og fékk þá tvær tæknivillur í röð og var rekinn út úr húsi. Staðan var þá 53-34 fyrir Keflavíkurliðið. Það tók dómara leiksins dágóðan tíma að fá Ricardo Gonzalez til að yfirgefa salinn en hann fékk síðan eiginkonu sína, Lidiu Mirchandani, til að klára leikinn fyrir sig. Myndatökumaður Stöð 2 Sport, náði því hinsvegar á mynd þegar Ricardo Gonzalez var að koma skilaboðum til sinna leikmanna þrátt fyrir að hafa verið bannað af dómurum leiksins að hafa frekari afskipti af leiknum. Ricardo Gonzalez sást bæði gefa konu sinni merki út um dyrnar í salinn en einnig fór Carmen Tyson-Thomas til hans milli þriðja og fjórða leikhluta og fékk ráð frá þjálfara sínum. Þetta sést vel í myndbandinu í spilaranum hér fyrir ofan. Ricardo Gonzalez er líklega á leiðinni í bann fyrir brottreksturinn en nú er spurning hvort að hann hafi brotið fleiri reglur með því að halda áfram að hafa afskipti af leiknum.Ricardo GonzalezMynd/Stöð 2 Sport
Dominos-deild kvenna Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira