Star Trek, sem í ýmsum myndum var fastur liður á sjónvarpsdagskrám á sjöunda áratug síðustu aldar og svo samfleytt frá 1987 til 2005, hefur ekki verið til í sjónvarpsþáttaformi frá því að Star Trek: Enterprise lagði upp laupana árið 2005.
Í millitíðinni hafa þó komið vinsælar kvikmyndir úr smiðju J.J. Abrams sem byggja á ævintýrum James T. Kirk og félaga í Star Trek-heiminum og hafa þær fært Star Trek heiminn aftur inn úr kuldanum.
Var því ákveðið að ráðast í framleiðslu nýrra þátta. Þættirnir gerast um tíu árum áður en þeir atburðir sem fjallað var um í upprunalegu Star Trek þáttunum sem sýndir voru á árunum 1966 til 1969. Aðalhlutverkið er í höndum Sonequa Martin-Green sem leikur Michael Burnham, sem er næstráðandi á USS Discovery.

Að lokum fóru þættirnir þó í loftið og líkt og fyrr segir voru fyrstu tveir þættir fyrstu þáttaraðarinnar frumsýndir í Bandaríkjunum í gær og fá þeir góða dóma.
Á Rotten Tomatoes fær þáttaröðin 86% af 100%. Þar virðast gagnrýnendur vera sammála um að fyrstu þættirnir séu góð byrjun á þessari þáttaröð, en að þrauka þurfi í gegnum fyrsta þáttinn af tveimur til þess að sjá þættina nái flugi.
Gagnrýnandi Vox fer fögrum orðum um þættina eftir að hafa séð fyrstu þrjá þættina. Gefur hann þáttunum 3,5 V af 5 mögulegum og segir að þættirnir nái að fanga flesta ef ekki alla kosti og galla við Star Trek-heiminn.
Gagnrýnandi Vulture er á svipaðri blaðsíðu og gagnrýnandi Vox. Þar segir hann að þáttunum takist að næla sér í mikið af því sem gerði hinar Star Trek þáttaraðirnar vinsælar. Þá segir hann einnig að eftir fyrstu þættina megi sjá að efniviðurinn sé til staðar til þess að búa til frábæran sjónvarpsþátt.
Hér að neðan má sjá stiklu fyrir þættina.