„Minibarinn“ að gera góða hluti hjá FH eftir heimsókn til Dags í Japan í sumar | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. september 2017 12:30
Ágúst Birgisson skrifaði undir nýjan samning við FH til ársins 2020 og hann hélt upp á það með góðri frammistöðu með FH-liðinu í Hafnarfjarðarslagnum í gærkvöldi. „Hann getur líka klárað færin á línunni þessi drengur. Sonur goðsagnarinnar, „Ísskápsins“ (Birgir Sigurðsson) og hann er búinn að heilla okkur með skemmtilegum „slúttum“ og það eru bara gæði í þessu,“ sagði Tómas Þór Þórðarson. Hann fór yfir þriðju umferð Olís deildar karla í handbolta í Seinni bylgjunni ásamt þeim Degi Sigurðssyni og Jóhanni Gunnari Einarssyni. „Þetta er skemmtilegur strákur og mjög góður. Hann kom til mín til Tókýó í sumar og æfði með mér í tvær vikur með japanska landsliðinu. Frábær strákur og ósérhlífinn," sagði Dagur Sigurðsson um Ágúst. „Þetta er líka bara falleg saga. Hann var þriðji línumaðurinn hjá Aftureldingu þegar ég var þar. Hann gat varla klárað færi til að bjarga lífi sínu. Það er annað að vera þriðji línumaður og vera stressaður þegar þú kemur inná en vera með sjálfstraust og vera aðalmaðurinn,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson. Guðmundur Benediktsson lýsti leiknum í gær og gaf Ágústi nýtt viðurnefni sem Ágúst verður líklega ósáttur með því hann vildi ekki vera litli ísskápurinn. Það var farið ennþá lengra og héðan af er Ágúst Birgisson kallaður „Minibarinn“ í Seinni bylgjunni. Það má sjá umræðu strákanna í spilaranum hér fyrir ofan.
Olís-deild karla Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Sjá meira