Frumsýningu níundu Stjörnustríðsmyndarinnar frestað Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. september 2017 23:42 J.J. Abrams leikstýrir níundu Stjörnustríðsmyndinni en hann leikstýrði einnig þeirri sjöundu í röðinni. Vísir/afp
Lucasfilm og Disney tilkynntu í dag að níunda Stjörnustríðsmyndin, sem ber vinnuheitið Star Wars: Episode IX, yrði ekki frumsýnd fyrr en 20.desember 2019. Næsta Stjörnustríðsmynd, Star Wars: The Last Jedi, kemur í kvikmyndahús í desember á þessu ári en til stóð að frumsýna næstu mynd á eftir þann 24.maí árið 2019. Fyrir viku var tilkynnt að Colin Trevorrow hefði verið látinn fara sem leikstjóri níundu Stjörnustríðsmyndarinnar. Í tilkynningu frá framleiðslufyrirtækinu Lucasfilm kom fram að um hefði verið að ræða sameiginlega ákvörðun leikstjórans og Lucasfilm og Disney um að stíga til hliðar. Í dag var svo sagt frá því að J.J. Abrams hafi verið ráðinn til þess að skrifa og leikstýra myndinni. Abrams leikstýrði sjöundu Stjörnustríðsmyndinni, The Force Awakens, sem var frumsýnd árið 2015. Líkt og hefur komið fram á Vísi er þetta ekki í fyrsta skipti sem skipt er um leikstjóra Stjörnustríðsmyndar. Phil Lord og Chris Miller voru reknir frá Han Solo-myndinni í júní síðastliðnum og Ron Howard fenginn í staðinn. Tony Gilroy var fenginn í stað Gareth Edwards til að ljúka við Rogue One og þá var Josh Trank settur til hliðar við vinnslu á Stjörnustríðsmynd eftir að fregnir bárust af undarlegri hegðun hans við tökur á Fantastic Four. Ljóst er að frumsýningu Star Wars: Episode IX hefur verið seinkað um sjö mánuði. Er það skiljanleg ákvörðun í ljósi breytinga á leikstjóra myndarinnar. Aðdáendur þurfa því að bíða í heil tvö ár á milli áttundu og níundu Stjörnustríðsmyndanna.
Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Stórbokkaskapur sagður hafa kostað Star Wars-leikstjóra starfið Leikstjórinn sagður hrokafullur og afar erfiður í samstarfi. 8. september 2017 18:52 J.J. Abrams mun leikstýra Star Wars: Episode IX Colin Trevorrow átti upphaflega að leikstýra myndinni en fyrir viku var greint frá því að honum hafi verið vikið frá störfum. 12. september 2017 14:37 Luke er síðasti Jedi-riddarinn Leikstjórinn Rian Johnson svarar loksins spurningu sem við hefðum átt að vita svarið við í tvö ár. 7. september 2017 13:15 Mest lesið Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Lífið Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin Lífið Guðni Th. orðinn afi Lífið Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Lífið Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Lífið Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lífið „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Lífið Madonna og Elton John grafa stríðsöxina Lífið Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Lífið Fleiri fréttir Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Stórbokkaskapur sagður hafa kostað Star Wars-leikstjóra starfið Leikstjórinn sagður hrokafullur og afar erfiður í samstarfi. 8. september 2017 18:52
J.J. Abrams mun leikstýra Star Wars: Episode IX Colin Trevorrow átti upphaflega að leikstýra myndinni en fyrir viku var greint frá því að honum hafi verið vikið frá störfum. 12. september 2017 14:37
Luke er síðasti Jedi-riddarinn Leikstjórinn Rian Johnson svarar loksins spurningu sem við hefðum átt að vita svarið við í tvö ár. 7. september 2017 13:15
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein