Úrskurðarnefnd ósammála ráðuneyti í helstu atriðum varðandi Downey-skjöl Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. september 2017 10:12 Sigríður Andersen í fréttum Stöðvar 2 í vikunni. Vísir
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra sagði í viðtali á Stöð 2 í fyrrakvöld að ráðuneyti hennar hefði lögum samkvæmt neitað um aðgang að gögnum varðandi uppreist æru kynferðisbrotamannsins Roberts Downey. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefði síðan fallist á sjónarmið ráðuneytisins um að í þeim væru upplýsingar sem ekki væri eðlilegt að veita aðgang að. Synjun dómsmálaráðuneytisins var kærð af fréttamanni RÚV til úrskurðarnefndar 26. júní í sumar. Aðrir höfðu einnig fengið synjun frá ráðuneytinu. Ef enginn hefði kært synjunina hefði nefndin ekki tekið málið til úrskurðar og ákvörðunin um að neita aðgangi að gögnunum í heild hefði staðið óhögguð. Í umfjöllun úrskurðarnefndarinnar kemur fram að dómsmálaráðuneytið teldi að umbeðin gögn væru undanþegin upplýsingarétti almennings því þau hefðu að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar. „Ráðuneytið afhendi því ekki gögn er varði einstakar umsóknir um uppreist æru. Þá sé það mat ráðuneytisins að því sé ekki heimilt að birta nöfn þeirra einstaklinga sem hafa vottað góða hegðun einstakra umsækjenda um uppreist æru á grundvelli 9. greinar upplýsingalaga,“ segir úrskurðarnefndin um rök dómsmálaráðuneytisins. Úrskurðarnefndin er ósammála þessari túlkun í meginatriðum.Vandséð að sjónarmið um vernd eigi við um ákvörðun ráðherra „Telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál vandséð að sjónarmið um vernd viðkvæmra persónuupplýsinga eigi alls kostar við um þá ákvörðun ráðherra að veita þeim einstaklingi sem kæran lýtur að uppreist æru,“ segir nefndin. Málið í heild falli ekki undir undanþáguákvæði upplýsingalaga. Var lagt fyrir ráðuneytið að afhenda öll gögn en strika þó yfir símanúmer, netföng og tilteknar upplýsingar í umsögnum tveggja manna sem mæltu með því að Robert fengi uppreist æru. Var þar um að ræða einkamálefni, meðal annars heilsufarsupplýsingar sem nefndin sagði sanngjarnt að færu leynt. Eftir stendur að veita átti aðgang að öllum skjölum málsins. Gögnin sem átti að afhenda voru í fyrsta lagi umsókn og ítrekun Roberts Downey um uppreist æru, að því undanskildu að strika átti yfir símanúmer og netföng, í öðru lagi vottorð þriggja manna sem mæltu með umsókninni – með fyrrgreindum útstrikunum, og í þriðja lagi tilkynning um reynslulausn frá Fangelsismálastofnun.Sagði nefnd hafa fallist á sjónarmið ráðuneytisSigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra ræddi mál Roberts Downey á Stöð 2 í fyrrakvöld. „Það er talað um mikla leyndarhyggju og að dómsmálaráðuneytið hafi farið á svig við upplýsingalög. Það er auðvitað ekki rétt. Við fengum í júní ósk um gögn í máli Roberts Downey og tókum þessa ákvörðun um það, ráðuneytið, lögum samkvæmt, að neita því vegna þess að í þeim kynnu að vera ákveðnar persónulegar upplýsingar sem lögum samkvæmt þurfa að fara leynt,“ sagði dómsmálaráðherra og bætti við. „Ég vil bara benda á það að úrskurðarnefndin fékk það til umfjöllunar í júní, hefur tekið allan þennan tíma til að fjalla um það og skilaði greinargóðum úrskurði núna í fyrradag þar sem fallist er á þessi sjónarmið dómsmálaráðuneytisins um það að það séu þarna upplýsingar sem ekki er eðlilegt að veittur sé aðgangur að. Þannig að við höfum tekið fullt tillit til þess og birt gögn í máli Roberts Downey með þeim tilmælum sem úrskurðarnefndin kveður á um með því að afmá tilteknar upplýsingar.“ Í viðtali á RÚV þetta sama kvöld tók dómsmálaráðherra enn dýpra í árinni og sagði ráðuneytið hafa „farið þá leið“ að fá úrskurð frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál sem hafi fallist á sjónarmið ráðuneytisins að „ekki væri hægt að birta gögnin eins og þau koma fyrir“.Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.Vísir/ErnirBjarni sagði dómsmálaráðuneytið hafa haft rétt fyrir sér Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði tók síðan í svipaðan streng og dómsmálaráðherra á blaðamannafundi í gær. Sagði Bjarni að úrskurðarnefnd um upplýsingamál teldi dómsmálaráðuneytið hafa haft rétt fyrir sér þegar það synjaði aðgangi að gögnum varðandi umsókn Roberts Downey um uppreist æru. Bjarni sagði frá því að Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra hefði sagt sér frá því í lok júlí að Benedikt Sveinsson, faðir hans væri einn meðmælenda í máli barnaníðings sem óskaði uppreistar æru. Vísaði Bjarni í að frá því í júní hefði mál Roberts Downey, sem væri sambærilegt að vissu leyti, verið „komið í farveg til úrskurðarnefndar um upplýsingamál“ eins og forsætisráðherra orðaði það. Lét hann þess ógetið að málið var komið á borð nefndarinnar vegna kæru á hendur dómsmálaráðuneytinu.Engin fyrirmæli um að „afmá persónugreinanleg gögn“ Að sögn Bjarna þurfti málið einfaldlega að ganga sína leið fyrir úrskurðarnefndinni og nú væri niðurstaðan komin. „Þá var niðurstaðan sú að dómsmálaráðuneytið hefði haft rétt fyrir sér um það að það væri óheimilt að veita fullt aðgengi að þessum gögnum; ráðuneytinu bæri skylda til þess að afmá persónugreinanlegar upplýsingar áður en að gögnin yrðu gerð opinber,“ sagði ráðherrann. Eins og komið hefur fram úrskurðaði nefndin hins vegar aðeins að strika ætti út símanúmer og netfang í umsókn Roberts og tilteknar upplýsingar í tveimur meðmælendabréfanna sem vörðuðu einkamálaefni og sanngjarnt þótti að opinbera ekki. Öllu öðru átti að veita aðgang að og engin fyrirmæli voru gefin um að afmá persónugreinanlegar upplýsingar á borð við nöfn og kennitölur.
Ríkisstjórn Bjarna Ben fallin Uppreist æru Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira