Veiði

Fleiri lokatölur úr laxveiðiánum

Karl Lúðvíksson skrifar
Þessir laxar láu í Búðardalsá en hún gaf 255 laxa í sumar.
Þessir laxar láu í Búðardalsá en hún gaf 255 laxa í sumar. Mynd: www.veida.is
Laxveiðiárnar loka nú hver af annari og lokatölur eru að berast úr þeim jafnóðum og við fyrstu sýn er þetta gott sumar í flestum ánum á vesturlandi.

Sumarið hefur verið með rólegra móti í mörgum ánum á norðurlandi með einhverjum undantekningum þó en heilt yfir er um gott sumar að ræða á vesturlandi.  Norðurá hefur skilað inn sínum lokatölum og þar komu á land 1719 laxar í sumar sem er yfir meðalveiðinni frá 1974 en hún er 1570 laxar.  okatölur úr Haffjarðará eru sömuleiðis komnar í hús en hún endaði í 1167 löxum en meðalveiðin í ánni er um 800 laxar svo Haffjarðará er svo sannarlega að skila sínu í sumar sem endra nær.

Aðrar ár sem eru búnar að loka og skila inn lokatölum eru Skjálfandafljót með 378 laxa, Búðardalsá með 255 laxa og Krossá á Skarðsströnd með 116 laxa.  Við komum til með að fylgjast vel með lokatölum úr ánum og birta þær um leið og þær berast.  






×