Veiði

Haustbragur á veiðitölum vikunnar

Karl Lúðvíksson skrifar
Það er komin haustbragur á veiðitölurnar og það styttist í að fyrstu lokatölurnar berist af bökkum ánna.

Rigningin í síðustu viku gerði ánum gott og kom tökunni aðeins í gang aftur.  Holl sem lauk veiðum í Langá á Mýrum í gær tók til að mynda 45 laxa í afslappaðri veiði en áin er komin í frábært veiðivatn og loksins hætt að vera glær eins og síðustu vikur.  Síðasta vika þar á bæ skilaði 77 löxum á land en vikan sem telur núna er komin í 60 laxa svo það stefnir í að Langá fari eitthvað yfir veiðina í fyrra.  Það sama má segja um aðrar ár á vesturlandi en Þverá/Kjarrá, Grímsá, Haffjarðaá, Laxá í Kjós og Laxá í Leirársveit eru ýmist komnar yfir eða fara nokkuð örugglega yfir heildarveiðina í fyrra.

Ytri Rangá er ennþá efst á listanum en það hefur aðeins dregið úr veiðinni þar sem er einkennilegt að segja þegar það veiðast ennþá hátt í 400 laxar í hverri viku.  Það er nokkuð ljóst að hún kemur til með að vera á toppnum þetta sumarið því það er nóg eftir af veiðitímanum og mikið af laxi í ánni.  Topp 10 listinn yfir aflahæstu árnar er hér að neðan en listann í heild sinni má finna á www.angling.is

Ytri-Rangá 4.583 lax­ar - viku­veiði 364 lax­ar

Miðfjarðará 2.937 lax­ar - viku­veiði 269 lax­ar

Þverá/​Kjar­rá 1.890 lax­ar - viku­veiði 113 lax­ar

Eystri Rangá 1.773 lax­ar – viku­veiði 88 lax­ar

Blanda 1.390 lax­ar - viku­veiði 59 lax­ar

Norðurá 1.442 lax­ar - viku­veiði 27 lax­ar

Langá á Mýr­um 1.314 lax­ar - viku­veiðin 77 lax­ar

Haffjarðará 1.085 lax­ar – viku­veiði 55 lax­ar

Grímsá í Borg­ar­f­irði 968 lax­ar – viku­veiði 50 lax­a

Selá í Vopnafirði 880 lax­ar – viku­veiði 70 lax­ar






×