Veiði

Ágætar haustveiðitölur í laxveiðiánum

Karl Lúðvíksson skrifar
Stórlax úr Hofsá í sumar en hún er komin yfir veiðina í fyrra.
Stórlax úr Hofsá í sumar en hún er komin yfir veiðina í fyrra.
Vikutölurnar úr laxveiðiánum voru birtar á miðvikudagskvöldið og það er greinilega góður kippur í veiðinni og þá sérstaklega í Borgarfirðinum.

Það má líklega ekki horfa framhjá vikutölunni úr Ytri Rangá en þar komu 1000 laxar á land síðustu talningarvikuna sem er dæmigert í ánni þegar annað agn er leyfilegt með flugunni.  Miðfjarðará átti líka fantagóða viku með 302 laxa og Þverá/Kjarrá og Norðurá komu sterkar inn en í Þverá veiddust 132 laxar en í Norðurá 220 laxar sem gerir þetta að bestu vikunni í ánni í sumar samkvæmt þessum tölum en 5-12. júlí í sumar gaf 219 laxa á móti 220 í síðustu viku.

Það sem gefur vikunni þessar niðurstöður er góð rigning sem skilaði sér í auknu vatni og í kjölfarið á því betri töku.  Þegar horft er yfir listann sést að margar árnar eru að eiga betra ár en í fyrra en svo eru nokkrar sem eiga lakara ár og þar má nefna Hítará með 450 á móti 779 í fyrra, Laxá í Dölum með 520 en 1711 í fyrra, Haukadalsá með 415 en 1085 í fyrra og svo Laxá í Aðaldal með 666 laxa en 1207 í fyrra.  Dæmin eru fleiri.  Heildarlistann má finna á www.angling.is en hér eru efstu árnar og vikuveiðin í þeim.

1. Ytri-Rangá 5588 laxar - vikuveiði 1006 laxar.

2. Miðfjarðará 3239 laxar - vikuveiði 302 laxar.  

3. Þverá og Kjarará 2022 laxar - vikuveiði 132 laxar.

4. Eystri-Rangá 1908 laxar - vikuveiði 135 laxar.

5. Norðurá 1662 laxar - vikuveiði 220 laxar.

6. Blanda 1430 laxar - vikuveiði 13 laxar.  

7. Langá 1383 laxar - vikuveiði 69 laxar.

8. Haffjarðará 1130 laxar - vikuveiði 45 laxar.






×