Lengi dreymt um að vinna titilinn hér Kristinn Páll Teitsson skrifar 24. júlí 2017 07:00 Íslandsmeistararnir í golfi 2017, Valdís Þóra Jónsdóttir og Axel Bóasson. mynd/seth/golf.is
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr GL, og Axel Bóasson, kylfingur úr GK, urðu Íslandsmeistarar í höggleik 2017 í gær en þetta er í þriðja skiptið sem Valdís tekur þennan titil en annað skiptið sem Axel hampar titlinum. Spennan var meiri í kvennaflokki framan af en taugar Valdísar voru sterkari á lokametrunum og hafði hún betur gegn heimakonunni Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. „Sigurtilfinningin er alltaf góð, ég er mjög þreytt en mjög ánægð,“ sagði Valdís Þóra í samtali við blaðamann eftir að sigurinn var í höfn en hún hefur verið á ferð og flugi út um allan heim að keppa á golfmótum, þar á meðal Opna bandaríska meistaramótinu í golfi, fyrst íslenskra kylfinga. „Það kom aldrei til greina að sleppa þessu móti, ég vissi að ég myndi koma hingað og ég var ekkert að taka þetta út af dagskránni þó að síðustu vikur hafi verið þéttskipaðar.“Fann fyrir pressu Valdís fann fyrir aukinni pressu fyrir þetta mót komandi heim sem atvinnukylfingur nýkomin af einu sterkasta móti heims. „Auðvitað var meiri pressa, það hefði ekki litið vel út ef ég hefði ekki verið meðal efstu kylfinga en Guðrún og Ragnhildur spiluðu vel og gerðu mér erfitt fyrir. Ég reyndi að vera róleg og það var ekki fyrr en á sautjándu sem ég fann hjartað byrja að slá á fullu.“ Valdís hefur þurft að horfa á eftir sigrinum til keppinauta sinna undanfarin þrjú ár úr öðru og þriðja sæti. „Ég er ánægð með sigurinn, það er alltaf gaman að vinna en skorið var ekkert frábært. Fyrsti sigurinn árið 2009 er ennþá í uppáhaldi. Það hefur verið súrt að horfa á eftir bikarnum undanfarin ár en það gerir þennan sigur sætari.“Dramatík á lokametrunum Í karlaflokki var eflaust löngu búið að skrifa nafn Axels á bikarinn þegar komið var á átjándu holu en hann var með fimm högga forskot fyrir sautjándu holu en glutraði því niður í takt við tvo fugla frá Haraldi Franklín. Þurfti því bráðabana til að skera úr um sigurinn en þar reyndist Axel sterkari og fagnaði sigri á heimavellinum. „Þetta er bara draumur í dós, mann er lengi búið að dreyma um að spila þetta mót hér í heimahögunum og að vinna titilinn hér. Loksins kom það tækifæri og ég er þakklátur fyrir að hafa náð að klára þetta,“ sagði Axel feginn er Fréttablaðið ræddi við hann eftir mótið. „Það gerist ekki sætara en að klára þetta hérna á heimavelli, ég er búinn að spila vel undanfarin Íslandsmót án þess að vinna og maður er bara í skýjunum með að taka þetta hér.“ Axel byrjaði daginn með þriggja högga forskot sem fór mest upp í sjö högg en bráðabana þurfti eins og áður segir til að tryggja titilinn. „Það er í raun bara eitt högg sem ég væri til í að taka til baka á öllu mótinu, ég vissi að ég væri búinn að spila vel og kom með sama hugarfar inn í þennan hring eins og aðra,“ sagði Axel og bætti við: „Það sauð á mér eftir átjándu holu, ég var virkilega svekktur en ég tók þetta eins og holukeppni sem hentar mér vel og sigldi þessu heim,“ sagði Axel feginn að lokum.Valdís Þóra hefur þrisvar sinnum orðið Íslandsmeistari í golfi.vísir/andri marinóAxel og Haraldur Franklín háðu einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki.vísir/andri marinó
Golf Mest lesið Gætu hent Crystal Palace út úr Evrópudeildinni Enski boltinn Hóta Abramovich lögsókn og vilja láta Úkraínu fá Chelsea peninginn Enski boltinn Sá glitta í þá Söru Sigmunds sem við þekkjum svo vel Sport Ummæli Davíðs Smára ekki á borði aganefndar Íslenski boltinn Bruno ætlar ekki að sækja seðlana í Sádi-Arabíu Enski boltinn Leikmenn ensku stórliðanna kvarta við leikmannasamtökin Enski boltinn Sýndu reiði Davíðs skilning en fannst hann fara yfir strikið Íslenski boltinn Leikurinn sem gæti leitt stelpurnar að HM í fyrsta sinn Fótbolti Badmus á förum en Valur heldur íslenskum lykilmönnum Körfubolti Sjáðu klaufalegu mörkin sem Fram gaf frá sér Sport Fleiri fréttir Var í góðum séns en missti af sæti á Opna bandaríska Heiðrún og Jóhannes unnu Hvaleyrarbikarinn í fyrsta sinn „Lengi dreymt um að keppa við þá“ Sjóðheitur Scheffler tryggði titil sem aðeins Tiger hafði tekist að verja Besti árangur Andreu á tímabilinu: Var með forystuna en endaði í fjórða sæti Tíu ára fór holu í höggi í Eyjum Frábær byrjun dugði ekki til og Gunnlaugur Árni úr leik Handtekinn í fyrra en vann nú með tárin í augunum Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Kylfingum skipað að flýja þrumuveðrið Stálheppinn þegar hann sló í hrífu og hélt toppsætinu Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Mikilmennin misstíga sig á PGA-meistaramótinu Fetar Spieth í fótspor McIlroy? Rosalegur ráshópur McIlroy Tveir Íslendingar gætu komist á US Open eftir dramatík hjá Dagbjarti Syni Tigers mistókst að tryggja sér sæti á Opna bandaríska Vinirnir vara Tiger við en honum er skítsama Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Sjá meira