Væntingarnar voru miklar enda markmiðin háleit og bæði þjálfarinn og leikmennirnir hafa talað um að skammast sín ekkert fyrir að setja markið hátt. Þá verður líka að sýna ákveðna auðmýkt og viðurkenna stöðuna eins og hún er núna. Stelpurnar okkar höfðu ekkert lengra í þessu móti að gera.
Undankeppnin var frábær og áföllin hafa dunið yfir liðið síðan henni lauk. Það er ekki hægt að horfa bara til baka og segja að liðið hafi unnið svona og svona marga leiki og skorað svona og svona mörg mörk. Það er vissulega staðreynd og árangurinn þar verður ekki tekinn af liðinu. Fortíðin breytir ekki núinu.

Fyrir leikinn í gærkvöldi var ekkert undir hjá íslenska liðinu nema stoltið. Samt sem áður setti Freyr og stelpurnar sjálfar ótrúlega pressu á sjálfa sig að vinna leikinn. Liðið vildi vinna og kveðja með stolti. Pressan sem stelpurnar settu á sig sjálfar fyrir leik þar sem ekkert var í boði virtist bera þær ofurliði því stress var í liðinu þrátt fyrir að heimferð væri örugg daginn eftir.
Austurríska liðið var miklu betra allan tímann og vann síst of stóran sigur. Þrátt fyrir að fá á sig þrjú mörk og gefa eitt þeirra hjó Guðbjörg Gunnarsdóttir samt nærri því að vera einn besti maður vallarins því svo mikið var að gera.
Austurrísku stelpurnar voru stærri, sterkari, teknískari og einfaldlega betri í fótbolta.
Lið þeirra er stútfullt af atvinnumönnum í góðum deildum eins og lið Sviss og Frakklands. Uppleggið hjá íslenska liðinu, að taka þetta með vörn, föstum leikatriðum og hjartanu, gekk einfaldlega ekki upp. Núll stig segir alla söguna.

Það var erfitt að horfa á stelpurnar þurfa að taka víkingaklappið með annars frábærum stuðningsmönnum íslenska liðsins í gær. Þær ætluðu sér að taka þetta að minnsta kosti einu sinni í gleðistund en sú varð alls ekki raunin.
Þegar kemur að spilamennsku landsliðsins er margt sem þarf að skoða eftir mótið og Freyr þarf að fara aftur að teikniborðinu fyrir undankeppni HM. Hann mun þó njóta þess að vera kominn aftur með Hörpu Þorsteinsdóttur en hún sýndi, þrátt fyrir að vera ekki í besta forminu, hversu mikilvæg hún er uppspili liðsins.
Það er synd fyrir mótið að Ísland sé að kveðja en það er út af stuðningsmönnunum og þessari þjóð sem hefur sett magnaðan svip á mótið. Austurríki náði frábærum árangri í gær en var með 1.000 manns í stúkunni á móti 3.000 Íslendingum. Því miður telur það ekkert inni á vellinum sjálfum.
Það jákvæða utan vallar
Það jákvæða gerðist mest utan vallar. Stelpurnar okkar nutu meiri athygli en nokkru sinni fyrr, athygli sem þær áttu fyrir löngu skilið. Þrátt fyrir þrjú töp vaknaði þjóðin og sá hversu miklir töffarar þetta eru. Ungar stelpur eru byrjaðar að vekja foreldra sína fyrir sólarupprás til að æfa sig. Þær langar að verða meira en bara dóttir föður síns. Þær langar að verða ein af þessum dætrum Evrópu.
