Róbert Downey var á bólakafi í poppinu Jakob Bjarnar skrifar 10. júlí 2017 11:06 Poppfræðingurinn Dr. Gunni greinir frá því að á hippaárunum var Róbert Árni mikilvirkur textahöfundur og samdi meðal annars texta fyrir hina fornfrægu hljómsveit Svanfríði.
Róbert Downey lögmaður var á bólakafi í poppinu á sínum yngri árum og samdi meðal annars dægurlagatexta fyrir hina fornfrægu hljómsveit Svanfríði á hippaárunum. Gunnar Lárus Hjálmarsson, öðru nafni Dr. Gunni, poppfræðingur greinir frá þessu á sinni Facbooksíðu. Mál Róberts Downey hafa verið mikið til umfjöllunar að undanförnu og vakti það upp mikla reiði víða í samfélaginu þegar hann hlaut uppreist æru, en hann var dæmdur á sínum tíma fyrir að hafa brotið kynferðislega á unglingsstúlkum, misnotað aðstöðu sína og tælt þær til fylgilags við sig með blekkingum og fégreiðslum. Þetta hefur þá leitt til þess að kastljósið hefur beinst að Róberti, menn að velta við steinum og fór Dr. Gunni til að mynda að gramsa í sínum poppgögnum. „Aðkoma níðingsins/lögmannsins Róberts Árna að poppinu hefur ekki farið hátt. Hann samdi engu að síður alla textana á plötu Péturs Kristjánssonar og félaga í Svanfríði, „What's Hidden There“ (1972). Í dag er þetta fágætur safngripur og seljast vel meðfarin eintök af plötunni á sirka 100þ kall,“ segir Dr. Gunni. Nokkur umræða er um þetta á Facebooksíðu hans en þar er meðal annars bent á að ýmsir í poppgeiranum hafa orðið uppvísir af einu og öðru misjöfnu og eru nefndir til sögunnar í því samhengi Gary Glitter, Michael Jackson og Jerry Lee Lewis.
Tengdar fréttir Faðir stúlku sem Robert Downey braut á krefst svara: „Hér er allt á skakk og skjön“ Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri og faðir stúlku sem Robert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson, braut á krefst svara við þeirri spurningu hvaða mat liggi að baki því Robert skuli hafa verið veitt uppreist æru í september síðastliðnum. 22. júní 2017 10:32 Forsetinn miður sín vegna máls Roberts Downey „Ég er bara eins og aðrir Íslendingar, held ég, að þegar kynferðisafbrot eru annars vegar þá vill maður helst að brotamaðurinn sé læstur inni og lykllinum hent.“ 16. júní 2017 11:18 „Við viljum vera siðmenntað ríki sem þýðir að við gefum mönnum annað tækifæri“ Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Roberts Downey sem í dag hlaut lögmannsréttindi á ný, gagnrýnir fjölmiðla fyrir að rifja upp þau brot sem skjólstæðingur hans var dæmdur fyrir í Hæstarétti árið 2008. Ekki er laust við að nokkurrar reiði gæti á samfélagsmiðlum vegna málsins en Jón Steinar minnir á að í íslenskum rétti sé það svo að menn fái annað tækifæri. 15. júní 2017 22:00 Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Fleiri fréttir Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Sjá meira
Faðir stúlku sem Robert Downey braut á krefst svara: „Hér er allt á skakk og skjön“ Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri og faðir stúlku sem Robert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson, braut á krefst svara við þeirri spurningu hvaða mat liggi að baki því Robert skuli hafa verið veitt uppreist æru í september síðastliðnum. 22. júní 2017 10:32
Forsetinn miður sín vegna máls Roberts Downey „Ég er bara eins og aðrir Íslendingar, held ég, að þegar kynferðisafbrot eru annars vegar þá vill maður helst að brotamaðurinn sé læstur inni og lykllinum hent.“ 16. júní 2017 11:18
„Við viljum vera siðmenntað ríki sem þýðir að við gefum mönnum annað tækifæri“ Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Roberts Downey sem í dag hlaut lögmannsréttindi á ný, gagnrýnir fjölmiðla fyrir að rifja upp þau brot sem skjólstæðingur hans var dæmdur fyrir í Hæstarétti árið 2008. Ekki er laust við að nokkurrar reiði gæti á samfélagsmiðlum vegna málsins en Jón Steinar minnir á að í íslenskum rétti sé það svo að menn fái annað tækifæri. 15. júní 2017 22:00