Veiði

Þingvallavatn er ennþá að gefa flottar bleikjur

Karl Lúðvíksson skrifar
Þorsteinn Stefánsson með flotta bleikju úr Þingvallavatni.
Þorsteinn Stefánsson með flotta bleikju úr Þingvallavatni.
Þingvallavatn er mikið stundað í maí og júní en eftir það er eins og veiðimenn leiti annað eftir silungsveiði þrátt fyrir að veiðin í vatninu sé oft best á þessum tíma.

Vatnið hefur lengi verið eins konar upphitunarvettvangur fyrir veiðimenn enda fer urriðaveiðin þar í gang í apríl og stendur yfir alveg fram í lok júní þegar bleikjan mætir upp að landi og urriðinn hverfur í dýpið.  Þegar líður á júní fer veiðimönnu oft að snarfækka við bakkann sem er mjög skrítið því ekki er veiðin að dala neitt á þessum tíma en það er þó staðreynd að margir veiðimenn gefast hreinlega upp á vatninu vegna fjölda ferðamanna á þessum tíma.

Varðandi veiðina þá er bleikjan oft á tíðum ekkert rosalega tökuglöð nema þá fyrst á morgnana.  Það verður þó ekki sagt að það sé nein sérstök tökutregða miðað við það sem við heyrum ofan af vatninu.  Meira að segja á þessum köldu morgnum um helgina voru menn við vatnið að gera mjög fína veiði og 32 bleikjur þjóðgarðinum til að mynda staðfest á eina stöng í gær.  Það er einnig komið nokkuð af murtu upp við landið og það er mikið af erlendum veiðimönnum sem sækja sérstaklega í að veiða hana enda þykir hún afbragðs matur heil á grillið.






×