Hyggjast gera fóstureyðingar löglegar í undantekningartilfellum Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. júlí 2017 19:50 Konur söfnuðust saman við mótmæli í Chile í fyrra og kröfðust aðgengis að öruggum og löglegum fóstureyðingum. Vísir/epa
Frumvarp, sem gerir fóstureyðingar löglegar í ákveðnum tilfellum, hefur verið samþykkt af tæpum meirihluta á þinginu í Chile. Lögleiðingin telst stór sigur fyrir flokk forsetans, Michelle Bachelet, og samtök sem barist hafa fyrir aðgengi kvenna að fóstureyðingum. Tæpur meirihluti þingsins kaus með lögleiðingu fóstureyðinga eftir langar og strangar umræður sem stóðu yfir næturlangt. Fóstureyðingar verða nú löglegar í þremur undantekningartilfellum, þegar líf konu er í hættu vegna þungunar, þegar fóstri er ekki hugað líf og þegar þungun verður í kjölfar nauðgunar. Fóstureyðingar eru enn bannaðar með öllu í Chile en banninu var komið á þegar einræðisherrann Augusto Pinochet fór með völd í landinu árin 1973-1990.Sögulegur morgunn í Chile Frumvarpið verður nú aftur tekið til meðferðar í neðri deildum þingsins og búist er við því að það verði að lögum áður en vikan er úti. „Þetta er sögulegur morgunn,“ sagði forseti Chile, Michelle Bachelet, er frumvarpið var samþykkt í þinginu. „Þingið samþykkti að afglæpavæða fóstureyðingu í þremur tilfellum, sem þýðir að við getum verið land í hverju konur geta tekið bestu mögulegu ákvörðun þegar svo er ástatt fyrir þeim.“ Frumvarpið hefur mætt nokkurri andstöðu af íhaldssamari væng stjórnmála í Chile. Þrátt fyrir það sýna niðurstöður kannanna í landinu fram á að um 70 prósent íbúa eru fylgjandi slökun á fóstureyðingabanninu.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira