Börn beitt ofbeldi í „hryllingshúsinu“ á Jersey-eyju áratugum saman Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. júlí 2017 16:20 Haut de la Garenne var vistheimili fyrir börn í tæpa öld. vísir/epa
Nefnd á vegum breskra yfirvalda sem fengin var til þess að rannsaka vistheimilið Haut de la Garenne á Jersey-eyju leggur til að húsið verði jafnað við jörðu þar sem það sé minnisvarði um skammarlega sögu fyrir marga einstaklinga sem dvöldu á heimilinu sem börn og máttu þar sæta vanrækslu og ofbeldi. Rannsóknin hófst árið 2008 og hefur kostað um 23 milljónir punda. Hún náði yfir langt tímabil eða frá miðjum fimmta áratug síðustu aldar og fram á þann tíunda en Haut de la Garenne varð vistheimili fyrir börn rétt um aldamótin 1900 og lauk starfseminni árið 1986. Haut de la Garenne hefur í gegnum tíðina verið kallað „hryllingshúsið“ vegna þeirra aðstæðna sem börnin sem dvöldu þar þurftu að þola en þau komu flest úr bágum félagslegum aðstæðum og áttu um sárt að binda þegar þau komu á vistheimilið. Þar var hins vegar ekki tekið vel á móti þeim en í umfjöllun Guardian um skýrsluna segir meðal annars að yfirvöld á Jersey-eyju hafi ekki rækt skyldur sínar gagnvart börnunum þar sem hvorki hafi verið pólitískur né faglegur vilji fyrir því að standa vel að málum á heimilinu. Þannig voru börnin beitt ofbeldi, bæði andlegu og líkamlegu, auk þess sem þau voru vanrækt en öll slík mál voru þögguð niður með þeim afleiðingum að börnin þorðu ekki að segja frá af ótta við að þeim yrði ekki trúað. „Í stuttu máli er niðurstaðan átakanleg saga af bæði óviðeigandi og árangurslausum afskiptum og afskiptaleysi hins opinbera. Börn voru stundum tekin frá fjölskyldum sínum án tilhlýðandi raka eða fyrir tilviljun að því er virðist,“ segir í skýrslunni auk þess sem rannsóknin leiddi í ljós að fjöldi barna hafði á níunda og tíunda áratugnum ekki fengið viðhlítandi aðstoð í velferðarkerfinu. „Þegar börn fóru af vistheimilinu sem unglingar fengu þau ekki viðhlítandi aðstoð til að koma undir sig fótunum.“
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira