Bíó og sjónvarp

Spider-Man: Homecoming sló í gegn á opnunarhelginni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Tom Holland er ekki einungis leikari heldur er hann einnig afar fær dansari.
Tom Holland er ekki einungis leikari heldur er hann einnig afar fær dansari. Vísir/Getty
Nýjasta kvikmyndin um kóngulóarmanninn, Spider-Man: Homecoming, á vegum kvikmyndaveranna Sony og Marvel, hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum en myndin rakaði inn 117 milljónum Bandaríkjadollara í miðasölu fyrstu helgina sína í sýningu.

Myndin skartar hinum 21 árs gamla Tom Holland í aðalhlutverki og færir Spiderman loksins í sama heim og hinar Marvel ofurhetjurnar, líkt og Iron-Man, Hulk og Captain America með samningi á milli Sony og Marvel en Sony á kvikmyndaréttinn af ofurhetjunni.

Þetta er í þriðja sinn sem Sony blæs lífi í kóngulóarmanninn en þessi mynd er þó vinsælli heldur en forverar sínir, Spider-Man frá árinu 2002 og The Amazing Spider-Man frá árinu 2012 en Spider-Man rakaði inn 114,8 milljónum í miðasölu á opnunarhelginni á meðan hin síðarnefnda halaði inn 62 milljónum.

Spider-Man: Homecoming hefur verið vel tekið meðal aðdáenda sem fagna því að Peter Parker geti barist á meðal hinna Marvel ofurhetjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.