Hverfishetja úr Breiðholtinu Reykvíkingur ársins Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. júní 2017 07:42 Anna Sif Jónsdóttir, Reykvíkingur ársins, renndi fyrir lax þegar Elliðaárnar voru opnaðar í morgun og það beit á agnið. vísir/anton brink
Anna Sif Jónsdóttir, formaður foreldrafélags Breiðholtsskóla, er Reykvíkingur ársins 2017. Þetta tilkynnti Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, í morgun þegar Elliðaárnar voru opnaðar. Er þetta í sjöunda sinn sem borgarstjóri útnefnir Reykvíking ársins en hefð hefur skapast fyrir því að Reykvíkingurinn ársins renni fyrir fyrsta laxinn í Elliðaánum. Anna Sif renndi því fyrir lax í morgun og veiddi einn vænan 56 sentimetra langan fisk. Anna Sif, sem er löggiltur endurskoðandi og býr í Fornastekk, ólst upp í Seljahverfi og hefur búið í neðra Breiðholti síðan 2003. „Ég áttaði mig á því að ég ætti eftir að eiga barn í Breiðholtsskóla til 2025 og því væri kannski ágætt að skipta sér af því hvernig þessi skóli væri,“ segir Anna Sif í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Anna Sif á tvö börn í skólanum ennþá en hún á börn á aldrinum 8, 11 og 17 ára.Anna Sif veiddi hinn vænsta lax í morgun.vísir/anton brinkHún hefur setið í stjórn foreldrafélagsins frá árinu 2007 og verið fjögur ár sem formaður en í tilnefningunni um hana segir meðal annars: „Hún hefur á undanförnum árum verið leiðandi í foreldrastarfi í Breiðholtsskóla og samstarfi milli foreldrafélaga allra grunnskóla í Breiðholtinu. Meðal verkefna sem unnið hefur verið ötullega að eru Fjölmenningarhátíð í neðra Breiðholti og Vorhátíð Breiðholtsskóla sem báðar eru orðnar ómissandi liður í menningu hverfisins.“Öflugur hópur foreldra kominn í foreldrafélagið Til að byrja var erfitt að virkja foreldra í starfið og var stjórnin aðeins skipuð tveimur einstaklingum í dálítinn tíma. „Nú er þetta hins vegar orðinn mjög öflugur foreldrahópur sem stendur að vorhátíð skólans, fjölmenningarhátíð og jólaföndri. Stjórnin er skipuð 20 sterkum einstaklingum sem vinna vel saman. Það sem drífur mig áfram er að reyna að skapa góðar minningar fyrir börnin í hverfinu úr skólanum sínum og ekki síður að efla sjálfsmynd minna eigin barna. Það hefur verið ofboðslega flottur hópur í þessu félagsstarfi og margir tilbúnir að grípa boltann. Allir ganga í hlutverkin og það er aldrei neitt vandamál með þrif eða annað sem þarf að gera. Starfið snýst um að skapa góða skólamenningu í kringum skólastarfið. Það er mjög mikilvægt að foreldrar taki þátt í lífi barnanna sinna. Allir geta gert eitthvað, það þarf ekki að taka sæti í stjórn til þess að skipuleggja eina bíóferð fyrir bekkinn eða vinna eitt sjálfboðaverk á vorhátíðinni. Ég myndi gjarnan vilja sjá fleiri foreldra virka í svona sjálfboðaliðastarfi,“ segir Anna Sif sem er vel þekkt í hverfinu. Þeir sem þekkja vel til starfa hennar segja að hún sé afar öflug og jákvæð í sínu nærsamfélagi.Reykvíkingur ársins á bökkum Elliðaár í morgun.vísir/anton brinkHverfishetja „Hún er ein af hverfishetjunum okkar,“ segir einn sem rætt var við vegna valsins. Anna Sif kemur víða við í félagsstarfi og situr meðal annars í Hollvinasamtökum Elliðaárdals auk þess að vinna að Fjölmenningarhátíðinni í Breiðholti sem hefur verið haldin tvisvar sinnum við miklar vinsældir og góðan orðstír. „Hér hefur orðið mikil fjölgun innflytjenda og að mínu mati verðum við að halda betur utan um þá. Hér í Breiðholtinu er góður hverfisbragur að flestu leyti, en við þurfum að huga betur að krökkunum sem eru að flytja til landsins. Það vita allir af vandamálinu en það er ekki búið að finna lausnina ennþá. Við höldum að maður á mann aðferðin sé best. Það verður að tala við fólk til að ná árangri,“ segir hún að lokum að því er fram kemur í tilkynningu.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sjá meira