Max Verstappen á Red Bull var fljótastur á báðum föstudagsæfingunum fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Bakú á sunnudag. Red Bull virðist eiga raunverulega möguleika á ráspól.
Fyrri æfingin
Verstappen var í sérflokki. Hann var næstum hálfri sekúndu á undan liðsfélaga sínum Daniel Ricciardo sem varð annar.
Sebastian Vettel varð þriðji eftir nokkrar ferðir út fyrir brautina.Sergio Perex á Force India lenti í því að smella bílnum utan í varnarvegg á æfingunni og skemma hann mikið. Perez slapp óskaddaður úr atvikinu sem átti sér stað á einum þrengsta hluta Formúlu 1 tímabilsins.
Mercedes menn voru í fimmta og sjötta sæti á æfingunni.
Seinni æfingin
Aftur var Verstappen hraðastur en á seinni æfingunni varð Valtteri Bottas á Mercedes annar, sléttum einum tíunda úr sekúndu á eftir Verstappen.
Jolyon Palmer smellti Renault bílnum utan í varnarvegg í áttundu beygju og batt þar með enda á sínar föstudagsæfingar.
Lewis Hamilton varð tíundi á seinni æfingunni, Mercedes virðist vera að glíma við vandamál í uppstillingu bílsins.
Red Bull liðið er líklegt til stórræða í tímatökunni á laugardag. Bein útsending frá henni hefst klukkan 12:50 á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 12:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.
