Olísdeildir karla og kvenna sýndar á Stöð 2 Sport Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. júní 2017 13:00 Við undirritun samningsins. Vísir/Ernir
Í dag var undirritaður samningur á milli Handknattleikssamband Íslands og 365 miðla um sýningarrétt í sjónvarpi frá leikjum Olísdeilda karla og kvenna. Samningurinn gildir til næstu þriggja ára. Við sama tilefni skrifaði HSÍ undir samning við Olís sem verður áfram aðalstyrktaraðili deildanna næstu þrjú árin. Tveir leikir verða í beinni útsendingu í hverri umferð Olísdeildar karla og einn í Olísdeild kvenna. Þá verður á dagskrá markaþáttur þar sem hver umferð verður gerð upp, líkt og þekkist í umfjöllun Stöðvar 2 Sport um Pepsi-deildirnar í knattspyrnu og Domino's-deildirnar í körfubolta. Nýtt keppnistímabil í Olísdeildum karla og kvenna hefjast í september og um leið beinar útsendingar frá leikjum á Stöð 2 Sport og hliðarrásum. Á blaðamannafundinum í dag var einnig tilkynnt um að 365 miðlar hefðu undirritað nýja samninga um sýningarrétt frá Domino's-deildunum í körfubolta við KKÍ og gilda þeir til 2021. Þá hafa samningar við ýmsa erlenda rétthafa verið endurnýjaðir og áfram sýnt frá leikjum þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, Formúlu 1, UFC og NFL en í síðastnefndu íþróttinni verða nú tvær beinar útsendingar í viku í stað einnar. Þá liggur fyrir samkomulag 365 miðla og Knattspyrnusambands Evrópu um að sýningarrétt frá lokakeppni EM 2020 í knattspyrnu sem og Þjóðardeild UEFA, nýrri keppni sem hefst haustið 2018. Áfram verður sýnt frá undankeppni stórmóta í knattspyrnu á Stöð 2 Sport líkt og undanfarin ár.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Olís-deild karla Olís-deild kvenna Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira