Pamína og Tamínó í Fella- og Hólakirkju Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 3. júní 2017 09:45 Organistinn Arnhildur milli söngvaranna Mörtu Kristínar og Einars Dags. Mynd/Bjarni Hallgrímur Bjarnason
Arnhildur Valgarðsdóttir organisti fær til sín gesti í Fella-og Hólakirkju í dag, laugardag, til að flytja þar söngdagskrá klukkan 17. Það eru þau Marta Kristín Friðriksdóttir sópran og Einar Dagur Jónsson tenór. Á dagskránni verða ýmsar frægar óperuaríur, meðal annars eftir Puccini og Donizetti, sóló og dúettar og einnig nokkrar af perlum íslenskra sönglaga. „Marta Kristín og Einar Dagur eru einstaklega efnileg ungmenni,“ segir Arnhildur. „Nefna má að þau sungu Pamínu og Tamínó í Töfraflautunni í uppsetningu Söngskólans í vor og þau syngja að sjálfsögðu aríur úr Töfraflautunni á tónleikunum.“ Þetta verða síðustu tónleikar vorsins undir yfirskriftinni Frjáls eins og fuglinn sem Arnhildur kom á laggirnar í janúar 2016. Gestum er boðinn kaffisopi og konfektmolar í hléinu. Aðgangseyrir er 2.500 krónur en 1.500 fyrir eldri borgara og öryrkja og ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri. Ekki verður posi á staðnum.
Menning Mest lesið Forsetahjónin létu sig ekki vanta Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Þorsteinn og Rós orðin hjón Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Fleiri fréttir Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira