Jólabarnið snýr aftur í markið hjá KA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2017 11:30 Jovan Kukobat. Vísir/Valli
KA er búið að finna sér markvörð fyrir átökin í 1. deild karla í handbolta næsta vetur en félagið hefur gert samning við Jovan Kukobat. KA teflir nú fram eigin liði í handboltanum eftir að félagið dróg sig út úr samstarfinu við Þór. Þórsarar spila hinsvegar áfram undir merkjum Akureyrar og munu liðin mætast í 1. deildinni næsta vetur. Jovan Kukobat er þrítugur Serbi sem hefur spilað áður handbolta á Akureyri. Kukobat var nefnilega markvörður Akureyrarliðsins tímabilið 2012-13 og 2013-14. „Allir sem fylgdust með Jovan Kukobat með þegar hann lék með Akureyri vita að þar er á ferðinni frábær markvörður og var einn besti maður Akureyrarliðsins á þessum tíma,“ segir í frétt um komu Jovan Kukobat á heimasíðu KA. Kukobat var valinn besti leikmaður Akureyrarliðsins tímabilið 2013-14 en eftir það tímabil yfirgaf hann Akureyri og hefur síðan reynt fyrir sér heimalandinu, Serbíu og Ísrael. Jovan Kukobat fór í Evrópukeppni með bæði serbneska félaginu HC Vojvodina 2014-15 og ísraelska félaginu Hapoel Ramat Gan 2015-16. „Þetta eru frábær tíðindi og gríðarlegur styrkur fyrir leikmannahóp KA fyrir komandi tímabil. Jovan hlakkar mikið til að snúa aftur til Akureyrar og biður fyrir kveðjur til gamalla vina og kunningja,“ segir í umræddri frétt um komu Jovan Kukobat. Það er tekið fram í fréttinni að Jovan Kukobat sé sannkallað jólabarn því kappinn er fæddur í Belgrad 25. desember 1987.
Olís-deild karla Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira