Ítreka að vantraust ríki á milli stjórnar og formanns Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. maí 2017 19:04 Ólafur Arnarson formaður Neytendasamtakanna.
Meirihluti stjórnar Neytendasamtakanna ítreka að enn ríki vantraust á milli stjórnar of formanns. Segir í tilkynningu að stjórnin harmi að ekki ríki traust á milli formanns og annarra í stjórn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá 12 fulltrúum í stjórn samtakanna, allra utan formannsins. Stjórnin lagði eins og kunnugt er fram vantrauststillögu á Ólaf Ólafsson, formann samtakanna, þann 6. maí síðastliðinn. Segir í tilkynningunni að meirihluti stjórnar harmi þær rangfærslur sem komið hafa fram í fréttaflutningi um samskipti í stjórn félagsins og sér sig því knúinn til þess að senda frá sér yfirlýsingu. „Unnið er í að leysa málin og er stjórn sammála formanni um að ekki stóð til í að standa í karpi í fjölmiðlum.“ „Neytendasamtökin eru öflug hópsamtök sem standa á traustum grunni. En eins og í öllum rekstri þá þarf að stíga varlega til jarðar í að efla þau og styrkja. Huga þarf að jafnvægi í tekjum og útgjöldum og byggja breytingar á markvissri áætlanagerð.“Álit starfskjaranefndar ekki sent til stjórnar Í tilkynningunni kemur fram að Ólafur hafi á fyrsta fundi nýrrar stjórnar lagt fram tillögu um að sett yrði á laggirnar starfskjaranefnd, sem hefði það hlutverk að fara yfir launamál starfsfólks samtakanna og formanns. Nefndin hafi skilað inn áliti sínu þann 27. janúar. „Álit starfskjaranefndar var ekki sent með fundarboði til stjórnar þegar ráðningarmál voru afgreidd 15. febrúar 2017. Það er þvert á lög samtakanna og loforð formanns um að álitið yrði borið undir stjórn.“Samningur hefði átt að vera í samræmi við launakjör Þá segir í tikynningunni að stjórnin hafi gert þau mistök að veita varaformanni umboð til að undirrita hefðbundinn ráðningarsamning við formann, án þess að efni samnings hefði verið lagt fyrir stjórn. „Í fundargerð kemur fram að gerður yrði hefðbundinn samningur við formann. Þegar rætt var um hefðbundinn samning, var talað um að hann væri í samræmi við launakjör og starfsskyldur fyrrverandi formanns. Í ljós kom að samningurinn reyndist ekki vera hefðbundinn í þeim skilningi. Í kjölfarið fékk formaður undirmann sinn til að leiðrétta laun sín afturvirkt, án vitneskju og heimildar stjórnar. Að mati meirihluta stjórnar er alvarlegast að formaður lét undirmann sinn greiða sér því sem nemur tæplega þriggja mánaða launum fyrirfram (að frádregnum sköttum og launatengdum gjöldum), án vitneskju og heimildar stjórnar.“Fjárhagsstaða hafi aldrei leyft leigu á bifreið Fram kemur í tilkynningunni að stjórn hafi samþykkt tillögu formanns um leigu á bifreið fyrir starfsfólk og formann samtakanna en sett skýran fyrirvara um að fjárhagsstaða samtakanna þyrfti að leyfa slíkt. „Þegar stjórn fékk loks upplýsingar um stöðu samtakanna kom í ljós að fjárhagsstaða þeirra leyfði ekki leigu á bifreið og því skýrt að grundvöllur umboðsins var aldrei fyrir hendi. Þá hefur starfsfólk NS hefur aldrei haft aðgang að bifreiðinni. Stjórn NS hefur samþykkt að segja upp leigu á bifreiðinni.“Stjórnin samþykkt starfs- og siðareglur í kjölfar trúnaðarbrests formanns Í tilkynningunn kemur auk þess fram að formaðurinn hafi gengið til samninga um rekstur smáforrits með þeim orðum að það yrði að kostnaðarlausu fyrir samtökin en síðar hafi komið í ljós að svo var ekki. Formaðurinn hafi ekki haft umboð til að ganga til fjárhagsskuldbindinga vegna forritsins. Þá segir að stjórnin hafi ítrekað kallað eftir rekstraráætlun frá og með fyrsta stjórnarfundi þar sem fram komi fjárhagsleg staða samtakanna, sem og áætlanir um aukin útgjöld. Sú umleitan hafi ekki borið árangur. Þá segir að það sé alfarið ákvörðun stjórnar að ákveða laun og starfshlutfall. „Í lögum samtakanna segir ekkert til um hvort formaður eigi að vera launaður starfsmaður, þiggja laun eða ekki.“ Að lokum segir í tilkynningunni að formaðurinn hafi gerst sekur um trúnaðarbrest og því hafi verið unnið að því að samþykkja nýjar starfs- og siðareglur. „Þegar í ljós kom að formaður hafði ítrekað leynt stjórn upplýsingum og skuldbundið samtökin um efni fram, lýsti yfirgnæfandi meirihluti stjórnar yfir vantrausti á sitjandi formann. Stjórn axlar ábyrgð og vinnur hörðum höndum við að vinda ofan af málinu. Það hefur meðal annars verið gert með því að samþykktar hafa verið nýjar starfs- og siðareglur. Einnig hefur verið skipað fjármálaráð sem samanstendur af þremur stjórnarmönnum.“ Tilkynningin er samþykkt af öllum stjórnarmönnum samtakanna utan formanns.
Mest lesið Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Veður „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Innlent Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira