Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun á Þjóðhátíð í Eyjum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. maí 2017 12:59 Frá þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 2015. Vísir/Vilhelm
Meirihluti fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjaness hefur dæmt pilt í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga stúlku, sem er fyrrverandi kærasta hans, í tjaldi á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sumarið 2015. Þá var hann jafnframt dæmdur til þess að greiða stúlkunni miskabætur að upphæð 1,5 milljónir króna. Ekki kemur fram í dómnum hvað stúlkan er gömul en þó verður ráðið af honum að hún hafi verið undir lögaldri. Þá voru hún og pilturinn á svipuðum aldri samkvæmt upplýsingum Vísis og var ungur aldur hans metinn honum til refsilækkunar.Allt í góðu til að byrja með Þegar brotið átti sér stað var um mánuður síðan að stúlkan hætti með piltinum eftir sjö mánaða samband en umrætt kvöld ætluðu þau að hittast til að sofa saman. Þau hittust við matartjaldið í Herjólfsdal og fóru svo saman í tjald piltsins. Samkvæmt framburði stúlkunnar fyrir dómi byrjuðu þau að kyssast og þá hafi allt verið í góðu. Kynlífið hafi byrjað eðlilega en í ákæru er broti piltsins lýst á þann veg að hann hafi, eftir að hann og stúlkan hófu samfarir með vilja beggja, beitt stúlkuna „ofbeldi og ólögmætri nauðung við samfarirnar, slegið hana ítrekað í andlitið, sett fingur í endaþarm hennar og ekki látið strax af háttseminni þó hún hafi beðið hann um það og reynt að færa höndina til [...].“ Þá var hann einnig ákærður fyrir að taka um háls stúlkunnar og þrengja að, klípa hana fast í brjóstin og bíta hana í vörina en pilturinn hélt samförunum áfram á meðan á þessu öllu stóð. Hlaut stúlkan af þessu margvíslega áverka, meðal annars mar á hálsi, sprungu við endaþarmsop og mar á báðum brjóstum.Krafðist frávísunar Pilturinn neitaði sök og krafðist frávísunar málsins fyrir dómi. Byggði frávísunarkrafan á því að í gögnum málsins lægju fyrir yfirlýsingar bæði af hálfu hans og stúlkunnar um að háttsemin, sem lýst væri í ákæru, félli að öllu leyti undir venjubundið kynlíf þeirra. „Því verði að líta svo á að ákæran byggist á því að í umrætt sinn hafi háttsemi ákærða farið út fyrir þau mörk sem hafi verið viðurkennd í samlífi þeirra. Engin tilraun sé þó gerð í ákæru, né rannsóknargögnum, til að útskýra hvar þessi mörk liggi, það er hvenær samræðið hafi breyst úr því að vera kynmök með samþykki beggja yfir í það að háttsemi ákærða varðaði við 194. gr. almennra hegningarlaga,“ segir í dómi héraðsdóms með vísan til greinargerðar piltsins fyrir dómi. Þá gerði pilturinn einnig athugasemd við rannsókn lögreglu og taldi að hún hefði öll gengið út á að reyna að sýna fram á sekt hans en dómurinn taldi hvorki vera annmarka á rannsókn málsins né ákæru sem leitt gætu sjálfkrafa til frávísunar.Kallaði stúlkuna hóru og druslu Dómurinn mat það jafnframt svo að fullyrðing piltsins um að kynlífið í tjaldinu hafi verið í samræmi við kynlíf sem hann og stúlkan hafi áður stundað væri ekki studd með gögnum málsins eða framburði vitna. „Ákærði hefur í raun sjálfur lýst því að kynlíf þeirra hafi verið annað en áður og ofbeldisfullt, en hann hefur viðurkennt að hafa kallað brotaþola hóru og druslu, sem hann hafi ekki gert áður, slegið hana fastar en hann ætlaði sér og verið harðhentur. Þá viðurkenndi ákærði hjá lögreglu að þegar brotaþoli sagði honum að hætta að setja fingur í endaþarm hennar hafi hann ekki hætt strax,“ segir í dómi héraðsdóms en framburður hans fyrir dómi var nokkuð frábrugðinn því sem hann bar hjá lögreglu. Þannig hafi hann dregið úr þeim framburði sínum að hann hafi slegið stúlkuna of fast og ekki lengur talið að hún hafi farið út úr grátandi vegna þess og þess að hann hafi kallað hana illum nöfnum heldur aðeins vegna þess síðarnefnda. Sagði hann fyrir dómi að orðbragðið hafi verið það eina sem hafi gengið of langt hjá honum í umrætt sinn.Einn dómari ósammála Samræmi var hins vegar í framburði stúlkunnar hjá lögreglu og fyrir dómi. Þá var hún með fjölmarga áverka sem studdu frásögn hennar auk þess sem fjölmörg vitni sem hittu hana eða ræddu við hana í kjölfar þess að brotið var á henni umrædda nótt lýstu því að hún hefði verið í mikilli geðshræringu. Þá liggur fyrir að miklar breytingar urðu á stúlkunni í kjölfar atviksins og flosnaði hún til að mynda upp úr skóla. Var pilturinn því sakfelldur fyrir nauðgun af meirihluta fjölskipaðs héraðsdóms en einn dómaranna taldi að sýkna ætti piltinn af nauðgun: „Bogi Hjálmtýsson héraðsdómari telur sannað að ákærði hafi viðhaft þá háttsemi sem í ákæru greinir og að sú háttsemi sé ofbeldi og hlutlægt séð nauðgun. Við saknæmismat um ásetning ákærða verði að líta til þeirra upplýsinga sem liggi fyrir í málinu um hvernig kynferðislegu sambandi aðila var háttað og að í umrætt sinn hafi ákærði haft réttmæta ástæðu til að ætla að brotaþoli hafi verið samþykk samförum við hann. Með hliðsjón af því verði ekki séð að ásetningur ákærða hafi náð til þess að nota hinar ólögmætu verknaðaraðferðir til þess að ná fram kynmökunum, og því beri að sýkna ákærða af nauðgun,“ segir í dómnum sem kveðinn var upp í lok apríl.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira