Sebastian Vettel vann í Mónakó Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 28. maí 2017 13:44 Sebastian Vettel vann keppnina í dag. Vísir/Getty
Sebastian Vettel kom fyrstur í mark í Furstadæminu Mónakó. Kimi Raikkonen fullkomnaði svo dag Ferrari í öðru sæti og Daniel Ricciardo varð þriðji á Red Bull. Vettel stal fyrsta sætinu af liðsfélaga sínum, Raikkonen í gegnum þjónustuhlé. Ricciardo ók snilldar vel á meðan hann hafði auða braut þegar Valtteri Bottas og Max Verstappen tóku þjónustuhlé. Ricciardo tók þriðja sætið af Bottas. Vettel leiðir þá heimsmeistarakeppni ökumanna með 25 stigum sem er einmitt sá fjöldi sem fæst fyrir að vinna eina keppni. Raikkonen hélt forystunni í gegnum ræsinguna og fátt tíðindavert gerðist í ræsingunni. Að því undanskyldu að Kevin Magnussen á Haas vann sig upp um tö sæti í ræsingunni og var orðinn níundi. Jenson Button ræsti af þjónustusvæðinu vegna vélaskipta. Fernando Alonso hafði samband við Button rétt fyrir keppnina í gegnum talstöðvakerfið. Button sagði í léttum tón að hann myndi pissa í sæti Alonso. Alonso keppir í Indy 500 kappakstrinum sem fram fer seinna í dag. Nico Hulkenberg á Renault lenti í því að gírkassinn bilaði og hann þurfti að hætta keppni á 17. hring. Bilið frá Raikkonen og aftur til Vettel var um ein og hálf sekúnda þegar 19 hringir voru búnir. Hamilton var kominn upp í 10. sæti vegna þess að Hulkenberg datt út og Sergio Perez tók þjónustuhlé. Þegar fremstu menn fóru að hringa hægari ökumenn í kringum 27. hring þá þéttist hópurinn örlítið en enginn gat raunar ógnað ökumanninum fyrir framan sig. Max Verstappen tók þjónustuhlé á 32. hring og Valtteri Bottas svaraði fyrir sig í baráttunni við Verstappen og tók þjónustuhlé á næsta hring og hæelt þriðja sætinu.Daniel Ricciardo ók gríðar vel í dag.Vísir/GettyRaikkonen kom inn á þjónustuvæðið og tók ofur-mjúku dekkin undir á hring 33. Raikkonen tapaði forystunni til Vettel sem kom inn á 39. hring eftir að hafa ekið ofur hringi á milli þess sem Raikkonen tók hlé og hann kom sjálfur inn. Ricciardo kom inn á hring 38 og kom út á brautina í þriðja sæti á eftir Ferrari mönnum. Verstappen var allt annað en sáttur eftir að hafa misst Ricciardo fram úr sér í gegnum þjónustuhlé. Hamilton kom inn í sjötta sæti á hring 46. og tók þjónustuhlé. Hann kom svo út í sjöunda sæti. Hamilton gekk vel að lágmarka skaðan sem var unninn í tímatökunni í gær. Hann ræsti 13. af stað í kappaksturinn. Öryggisbíllinn var kallaður út þegar Pascal Wehrlein á Sauber bílum valt í brautinni og endaði á hlið upp við vegrið á hring 60. Byltan kom í kjölfar áreksturs við Jenson Button sem féll úr leik í kjölfarið með brotna framfjöðrun. Marcus Ericsson féll úr leik á meðan öryggisbíllinn var úti vegna þess að hann missti bremsuhita og hafnaði á öryggisvegg. Báðir Sauber ökumennirnir duttu út með nokkurra hringja millibili. Stoffel Vandoorne féll úr leik í endurræsingunni á 67. hring þegar hann skautaði á sama varnarvegg í fyrstu beygju og grandaði bíl Ericsson. Daniil Kvyat féll úr leik á hring 72 eftir að Sergio Perez keyrði inn í hliðina á honum.
Formúla Tengdar fréttir Kimi Raikkonen á ráspól í Mónakó Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur allra í tímatökunni fyrir Mónakókappaksturinn sem fram fer á morgun. Sebastian Vettel varð annar á al-rauðri fremstu rásröð á morgun. 27. maí 2017 12:56 Button: Tekur tíma að venjast auknum hraða Jenson Button sem tekur sæti Fernando Alonso hjá McLaren í Mónakókappakstrinum um helgina segir að það muni taka tíma að venjast auknum hraða bílanna í ár. 26. maí 2017 20:30 Vettel: Kominn tími til að Ferrari vinni í Mónakó Sebastian Vettel, ökumaður Ferrari liðsins segir að tími sé til kominn að liðið vinni Mónakókappaksturinn í Formúlu 1. 26. maí 2017 18:15 Raikkonen: Ég sé ekki af hverju við ættum ekki að geta unnið á morgun Kimi Raikkonen náði fimmtugasta ráspól finnsks ökumanns í Formúlu 1 og Sebastian Vettel lokaði fremstu rásröðinni fyrir Ferrari. Hver sagði hvað eftir tímatökuna? 27. maí 2017 22:15 Mest lesið Liðsfélagi Sveindísar opnar sig: Skammast mín og er skíthrædd Fótbolti Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Íslenski boltinn „Mér finnst þetta vera hræðilegt“ Handbolti Verndar Viktor eftir slæma reynslu með Orra: „Það var erfitt“ Fótbolti „Ég var mjög svekkt og reið yfir því sem hún gerði“ Sport Viktor sló Meistaradeildarmet Lamine Yamal Fótbolti Sturlað afrek Viktors: „Okkar útgáfa af Woltemade“ Fótbolti „Hún lamdi aðeins á mér“ Handbolti Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Íslenski boltinn Liverpool-krísan stækkar og stækkar eftir stórtap á Anfield Fótbolti Fleiri fréttir Svakaleg spenna: Svona verður Norris heimsmeistari á sunnudaginn Vinur Schumacher segir að almenningur muni aldrei sjá hann aftur Hamilton líður ömurlega á versta tímabili ferilsins Helgi Verstappen varð enn betri: Norris og Piastri dæmdir úr leik Óvæntar fréttir frá Las Vegas: Norris og Piastri gætu verið dæmdir úr leik Verstappen vann í Las Vegas og minnkaði forskot Norris Norris á pól og heimsmeistaratitillinn í augsýn Fjórtán ára dóttir Häkkinens gengur til liðs við McLaren Frétti af Schumacher og fékk sjokk: „Átti að fara njóta lífsins“ Forsetinn gagnrýnir Formúlu 1-stjörnurnar: „Ættu að tala minna“ Lewis Hamilton segist vera fastur í martröð Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Norris með aðra höndina á titlinum Norris á ráspól en Verstappen í vandræðum Verstappen telur sig ekki geta barist um titilinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Grunur um nauðgun á heimili Schumachers Segir að formúlu 1 vanti nú illmenni Russell fyrstur í mark í Singapúr og McLaren tryggði sigur bílasmiða George Russell á ráspól í Singapúr Hringt í flesta eigendur í Formúlu 1 eftir brottreksturinn frá Red Bull Sjá meira
Kimi Raikkonen á ráspól í Mónakó Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur allra í tímatökunni fyrir Mónakókappaksturinn sem fram fer á morgun. Sebastian Vettel varð annar á al-rauðri fremstu rásröð á morgun. 27. maí 2017 12:56
Button: Tekur tíma að venjast auknum hraða Jenson Button sem tekur sæti Fernando Alonso hjá McLaren í Mónakókappakstrinum um helgina segir að það muni taka tíma að venjast auknum hraða bílanna í ár. 26. maí 2017 20:30
Vettel: Kominn tími til að Ferrari vinni í Mónakó Sebastian Vettel, ökumaður Ferrari liðsins segir að tími sé til kominn að liðið vinni Mónakókappaksturinn í Formúlu 1. 26. maí 2017 18:15
Raikkonen: Ég sé ekki af hverju við ættum ekki að geta unnið á morgun Kimi Raikkonen náði fimmtugasta ráspól finnsks ökumanns í Formúlu 1 og Sebastian Vettel lokaði fremstu rásröðinni fyrir Ferrari. Hver sagði hvað eftir tímatökuna? 27. maí 2017 22:15