Nýtt meistaranám í viðskiptalögfræði, MBL, við háskólann á Bifröst Háskólinn á Bifröst kynnir 13. maí 2017 09:00 Námið er til að mynda tilvalið fyrir stjórnendur og er einnig sérlega góður kostur fyrir þá sem hafa lokið grunnnámi í lögfræði.
Hagnýtt nám opið öllum þeim sem lokið hafa grunnháskólagráðu. Nú á vorönn fór af stað nýtt meistaranám í viðskiptalögfræði, MBL (Master of Business Law) sem er eina nám sinnar tegundar á Íslandi. Um er að ræða hagnýtt og krefjandi nám opið öllum þeim sem lokið hafa grunnháskólagráðu. Námið inniheldur námskeið á sviðum lögfræði og viðskiptafræði og er meginmarkmið þess að undirbúa nemendur fyrir fjölbreytt störf í viðskiptalífinu.Unnar Steinn Bjarndal, hæstaréttarlögmaður og forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst.Námið er t.a.m. tilvalið fyrir stjórnendur og er einnig sérlega góður kostur fyrir þá sem hafa lokið grunnnámi í lögfræði. Val er um tvær áherslur í meistaranámi í viðskiptalögfræði, annars vegar MBL gráðu og hins vegar ML gráðu. ML gráða, auk grunnnáms í lögfræði, er viðurkennt fullnaðarpróf í lögfræði og geta nemendur sem lokið hafa prófi setið námskeið til öflunar lögmannsréttinda. Allt meistaranám í lögfræði er kennt í fjarnámi og er unnt að ljúka náminu á þremur önnum án ritgerðar eða fjórum með meistararitgerð. Hver nemandi getur tekið námið á þeim hraða sem honum hentar og námið er ekki síst hugsað fyrir þá sem vilja sækja sér framhaldsmenntun samhliða vinnu. „Í viðskiptalögfræði fléttast saman tvær hagnýtar námsgreinar þannig að úr verður fjölbreytt og krefjandi nám. Mikil eftirspurn er eftir öflugum lögfræðingum sem skilja og þekkja þarfir atvinnulífsins. Í viðskiptalögfræði er megináhersla lögð á kjarnagreinar lögfræðinnar en jafnframt þær greinar viðskiptafræðinnar sem tengjast rekstri og fjármálum,“ segir Unnar Steinn Bjarndal hæstaréttarlögmaður og forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst.Allt meistaranám við háskólann er í boði í fjarnámi.Í fararbroddi í fjarnámi Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi á Íslandi og er allt meistaranám við háskólann í boði í fjarnámi. Það er því kjörið fyrir þá sem vilja stunda nám samhliða vinnu. Fjarnámið er þannig uppbyggt að nemendur fá einn til tvo fyrirlestra á rafrænu formi í hverri viku þar sem kennari kynnir og fjallar um efni vikunnar. Þá eru reglulega lögð fram verkefni í námsefninu og nemendur sækja umræðu- og verkefnatíma með kennurum á vinnuhelgum á Bifröst. Vinnuhelgar eru mikilvægur liður í því styrkja tengslanet kennara og nemenda.Einar Karl Hallvarðsson, ríkislögmaður og dósent við lagadeildUmsagnir kennara „Meistaranám í viðskiptalögfræði veitir nemendum tækifæri til að hasla sér völl á vettvangi réttarvörslunnar auk starfa á mörgum sviðum atvinnulífsins.“Einar Karl Hallvarðsson, ríkislögmaður og dósent við lagadeildHelga Kristín Auðunsdóttir, lektor við lagadeild og doktorsnemi við Fordham háskóla.„Háskólinn á Bifröst er þátttakandi í alþjóðlegu samstarfsverkefni lagadeilda, LawWithoutWalls, og hefur nemendum okkar m.a. verið hrósað fyrir að vera vandvirkir og fljótir að tileinka sér ný vinnubrögð. Þessi endurgjöf hefur staðfest að kennsluaðferðir okkar séu árangursríkar og að nemendur okkar búi að þeim breiða grunni sem námið veitir þeim.“Helga Kristín Auðunsdóttir, lektor við lagadeild og doktorsnemi við Fordham háskóla. Greinin birtist fyrst í sérblaði um Meistaranám á Bifröst 4. maí 2017.
Mest lesið Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Play sé ekki að fara á hausinn Viðskipti innlent Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Neytendur Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Viðskipti innlent Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Sjá meira