Óskar Bjarni: Ég vissi að þetta yrði svona í þessum leik, varðandi dómgæsluna Dagur Sveinn Dagbjartsson skrifar 13. maí 2017 16:18 Óskar Bjarni var ekki ánægður með störf dómaranna í dag. vísir/ernir
Óskar Bjarni Óskarsson, annar þjálfara Vals, var eðlilega svekktur eftir tapið fyrir FH í dag. Valsmenn unnu góðan sigur í Hafnarfirði í fyrsta leik liðanna en nú er staðan í einvígi liðanna jöfn. „Svona er þetta bara. Þetta eru tvö hörkulið og vitað að þetta yrði erfitt. Ég er aðallega svekktur yfir því hvernig við spilum leikinn. Við náum ekki sama varnarleik og við erum þekktir fyrir og við náum ekki sömu markvörslu og í síðustu leikjum,“ sagði Óskar Bjarni sem var heldur ekki sáttur við dómara leiksins. „Það er allt í lagi að reka menn útaf þegar þeir eru að rífa kjaft en þetta er úrslitakeppnin og menn rífa ekki kjaft þegar um er að ræða eitthvað lítið atriði. Þeir voru að sækja í gul spjöld og tvær mínútur og þannig er ekki handboltinn,“ sagði Óskar Bjarni. „En við þurfum bara að vinna með okkur sjálfa. Við erum of mikið að kvarta eftir hvern dóm og þegar líður á leiki og lið eru orðin þreytt, þá lítur þetta út eins og agaleysi. Ég og Gulli [annar þjálfara Vals] berum ábyrgð á því. Við megum bara ekki segja neitt. En ég vissi alveg að þetta yrði svona í þessum leik varðandi dómgæsluna.“ „FH kom með nýja hluti og voru flottir. Gísli var sprækur en fær að gera þetta svolítið á fjórum skrefum. En hann er búinn að vera frábær og er einn efnilegasti leikmaður okkar Íslendinga. En þetta er bara veisla og ef einhver hélt að þetta yrði 3-0 fyrir FH eða 3-0 fyrir Val, þá er það bara vitleysa. Tvö frábær lið,“ sagði Óskar Bjarni að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira