Efnarannsókn á tönnum Ísdalskonunnar færir lögregluna nær uppruna hennar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. maí 2017 23:24 Lík konunnar hafði verið brennt og hefur aldrei tekist að bera kennsl á það.
Efnarannsókn sem gerð var á tönnum Ísdalskonunnar hefur fært norsku lögregluna nær uppruna þessarar dularfullu konu sem fannst látin í skóglendi skammt frá Bergen fyrir tæpri hálfri öld. Búið var að brenna lík hennar og hefur aldrei tekist að bera kennsl á hana en málið var opnað á ný um áramótin. Það er jafnan talið dularfyllsta sakamál sem upp hefur komið í Noregi enda hefur aldrei verið upplýst hvað kom fyrir konuna eða hver hún er. Efnarannsóknin nú var gerð á þremur tönnum úr konunni af vísindamanni í Ástralíu, Jurian Hoogewerff, í háskólanum í Canberra. Hann sérhæfir sig í því að efnagreina tennur með það að markmiði að finna út hvaðan úr heiminum þær koma. Áður höfðu DNA-rannsóknir leitt í ljós að Ísdalskonan er að öllum líkindum evrópsk en rannsóknir sem gerðar voru á skrift hennar benda til að hún hafi mögulega lært að skrifa í Frakklandi. Efnarannsóknin á tönnunum nú gefur hins vegar nákvæmar til kynna hvaðan hún getur verið þar sem vísindamaðurinn hefur búið til líkindakort sem sýna þau svæði þar sem líklegast er að Ísdalskonan hefur verið sem barn og unglingur.Að því er fram kemur í frétt NRK mun rannsóknarteymið nú einbeita sér að því að safna hugsanlegum upplýsingum um konuna frá Frakklandi og Þýskalandi í samræmi við niðurstöður efnarannsóknarinnar. Þannig benda niðurstöður rannsóknarinnar til nokkurra afmarkaðra svæða í Frakklandi. Á meðal þess sem kemur fram í niðurstöðunum er mikil svörun við landamæri Þýskalands og Frakklands. Þá kemur í ljós að Ísdalskonan hefur flutt á milli landa sem barn eða unglingur, að öllum líkindum frá Austur-eða Mið-Evrópu til Vestur-Evrópu. Mögulega var það á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar.Um síðustu áramót fjallaði fréttastofa 365 ítarlega um mál Ísdalskonunnar en umfjöllunina má nálgast hér.
Tengdar fréttir Brennda líkið í Ísdalnum - Dularfyllsta lögreglumál Noregs opnað á ný Nakið og illa brunnið lík finnst í stórgrýtisurð rétt utan við miðbæ Bergen. Allar vísbendingar um hver konan er hafa verið fjarlægðar. Í áratugi hefur enginn náð að þoka málinu áfram og eftir stendur þekktasta sakamál Norðmanna. 31. desember 2016 06:00 Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Brennda líkið í Ísdalnum - Dularfyllsta lögreglumál Noregs opnað á ný Nakið og illa brunnið lík finnst í stórgrýtisurð rétt utan við miðbæ Bergen. Allar vísbendingar um hver konan er hafa verið fjarlægðar. Í áratugi hefur enginn náð að þoka málinu áfram og eftir stendur þekktasta sakamál Norðmanna. 31. desember 2016 06:00