„Sögufélaginu og Héraðsskjalasafninu hefur hvoru tveggja verið sinnt vel í gegnum tíðina og eru þar af leiðandi öflugar stofnanir,“ segir Hjalti Pálsson, formaður Sögufélagsins, þegar hann er beðinn um að líta um öxl. Segir hafa verið gefin út á bilinu 90 til 100 rit á þessum tíma og mikið og gott samstarf hafi verið milli sögufélagsins og safnsins. „Þetta eru öflugustu menningarstofnanir sveitarfélagsins á sína vísu,“ fullyrðir hann.
Hjalti segir Sögufélag Skagfirðinga elsta héraðssögufélag landsins. Það hafi starfað óslitið síðan það var stofnað 1937 og félagsmenn séu nú um 750 talsins.

Í ritunum er farið yfir allar bújarðir í Skagafirði, sem eru yfir sex hundruð talsins. „Byggðasagan er hugsuð sem handbók og yfirlitsrit yfir allar jarðir í Skagafirði og hefur nú þegar komið að miklum notum, meðal annars við skipulagningu, til dæmis með tilliti til ferðaþjónustu,“ segir hann og er ekki í vafa um að útgáfan sé einstök á landsvísu.
Afmælishaldið ber upp á lokadag Sæluviku Skagfirðinga 2017 sem er ein elsta menningarhátíð landsins að sögn Hjalta. „Saga hennar nær allt aftur til ársins 1874 þegar svonefndar sýslunefndarvikur hófu göngu sína.“
Auk ávarps forsetans verða eftirfarandi erindi og fyrirlestrar á dagskránni:Guðný Zoega: Byggðasagan ofan jarðar og neðan- vitnisburður fornleifafræðinnar.
Harpa Björnsdóttir: Bóndi í klammeríi. Um fangavist Sölva Helgasonar í Danmörku.
Unnar Ingvarsson: Bærinn sem varð að þorpi. Sauðárkrókur í sókn og vörn um aldamótin 1900.
Viðar Hreinsson: Jón lærði í vísindavagninum. Samskipti Jóns lærða við Hólamenn.
Auk þess munu Ásta Pálmadóttir sveitastjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Hjalti Pálsson, formaður Sögufélagsins og Sólborg Una Pálsdóttir héraðsskjalavörður taka til máls.
Sölvi Sveinsson stýrir málþinginu.