Börsungar vongóðir að leikbanni Neymar verði frestað | Ferðaðist með til Madríd Kristinn Páll Teitsson skrifar 22. apríl 2017 22:00 Neymar fær rauða spjaldið sem er að valda fjaðrafoki hjá spænska knattspyrnusambandinu. vísir/getty
Börsungar vonast til þess að geta teflt fram brasilíska framherjanum Neymar þrátt fyrir að hann taki þessa dagana út þriggja leikja bann í stórleiknum gegn Real Madrid annað kvöld en hann ferðaðist með liðinu til höfuðborgar Spánar í gær. Neymar fékk rautt spjald í 0-2 tapi Barcelona gegn Malaga á dögunum en aganefnd spænsku deildarinnar dæmdi hann í þriggja leikja bann og sakaði hann um að hafa gert lítið úr fjórða dómaranum á leiðinni af velli. Hefur hann þegar tekið út eins leikja bann. Forráðamenn Barcelona kærðu úrskurðinn til gerðardómstóls íþrótta á Spáni en skiluðu inn kærunni seint að kvöldi til í gær þegar dómstóllinn hafði lokið störfum þá vikuna. Hefur það borist út að forráðamenn Barcelona séu vongóðir um að á meðan málið sé í meðferð þá taki bannið ekki gildi og telji því að Neymar eigi því að geta tekið þátt í leiknum. Verður því fróðlegt að sjá hvort Börsungar láti á það reyna eða hvort hann verði í áhorfendastúkunni á morgun. Þátttaka hans í leiknum yrði gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Börsunga sem þurfa einfaldlega að vinna leikinn til að eiga einhverja von um að endurheimta spænska meistaratitilinn.
Spænski boltinn Mest lesið Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Enski boltinn Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu Fótbolti „Ég er mjög þreyttur“ Íslenski boltinn „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Fótbolti Leiknir selur táning til Serbíu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Katla kynnt til leiks í Flórens Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Sjá meira