Saka Norðurál um að skella litla manninum á gólfinu undir fallöxina Birgir Olgeirsson skrifar 18. apríl 2017 18:29 Verkaðlýðsfélag Akraness gagnrýnir Norðurál harðlega fyrir varpa sök á vinnuslysi alfarið á starfsmann og segja honum upp. Vísir/Vilhelm „
Kjarni málsins er að þetta slys átti aldrei að geta gerst ef fyrirtækið hefði haft búnaðinn í lagi,“ segir á vef Verkalýðsfélags Akraness sem gagnrýnir harðlega ákvörðun Norðuráls að segja starfsmanni fyrirtækisins upp vegna vinnuslyss. Norðurál hefur sakað starfsmanninn alfarið um að bera ábyrgð á slysinu sem varð 22. mars síðastliðinn þegar starfsmaður slasaðist illa eftir að krani skall á töppunarkrana með þeim afleiðingum að svokölluð bímgræja, sem er nokkur tonn að þyngd, slóst í einn starfsmann. Á vef verkalýðsfélagsins kemur fram að viðkomandi starfsmaður slasaðist illa og lá á gjörgæslu Landspítalans í viku en líður eftir atvikum vel í dag. Í greininni kemur fram að starfsmaðurinn sem var rekinn lét öryggisstjóra vita strax eftir slysið að hann vissi alls ekki hvernig þetta gerðist. „Enda sagði hann að svona ætti ekki að geta gerst og var andlega niðurbrotinn vegna slyssins.“Þótti ósanngjarnt að axla ábyrgðina einn Verkalýðsfélagið segir Norðurál hafa sent frá sér yfirlýsingu tveimur dögum eftir slysið að ekkert hafi verið að öryggisbúnaði og þar með varpað ábyrgð á starfsmanninn sem var rekinn. „Þessar yfirlýsingar fyrirtækisins um að ekkert hafi verið að verið að búnaði kranans ollu mínum félagsmanni enn meiri andlegri vanlíðan og var hún næg fyrir, enda hafði hann miklar áhyggjur af samstarfskonu sinni. Félagsmaðurinn leitaði til Verkalýðsfélags Akraness eftir yfirlýsingar Norðuráls um að ekkert væri að búnaðinum og sagðist óttast að fyrirtækið ætlaði sér að láta hann axla alla ábyrgðina einan sem honum þótti eðlilega ósanngjarnt,“ segir í greininni.Fékk stöðu sakbornings Verkalýðsfélagið kallaði eftir upplýsingum sem lágu fyrir um málið en við skoðun á þeim á að hafa komið fljótt í ljós að það stæðist ekki af hálfu Norðuráls að ætla að varpa allri sök á þessu slysi á herðar starfsmannsins. „En það er rétt að geta þess að starfsmaðurinn var kallaður í skýrslutöku hjá lögreglunni með stöðu „sakbornings“ sem hugsanlega endurspeglast í því að fyrirtækið var ítrekað búið að gefa út yfirlýsingar um að ekkert væri að búnaði kranans,“ segir í greininni. Það er skoðun Verkalýðsfélagsins að ekki sé neinn vafi á því að kraninn var bilaður og ef hann hefði verið í lagi þá hefði þetta slys aldrei orðið. „En af hverju segjum við hjá Verkalýðsfélagi Akraness að kraninn hafi verið bilaður? Jú, vegna þess að í 9. grein reglugerðar um öryggisbúnað krana og lyftibúnaðar segir m.a. orðrétt: „Séu tvö eða fleiri lyftitæki á sömu braut eða spori skulu vera á þeim nálgunarrofar til að koma í veg fyrir árekstur“. Sem sagt, reglugerð Vinnueftirlitsins kveður skýrt á um að það eigi að vera árekstrarvörn á öllum krönum sem eru á sömu braut (nálgunarrofi) til að koma í veg fyrir árekstur! Með öðrum orðum, þetta slys átti ekki að geta átt sér stað ef fyrirtækið hefði haft búnaðinn í lagi eins og 9. grein reglugerðar Vinnueftirlitsins kveður á um.“ Þá segir þar að auki: „Það gengur alla vega ekki að skella alltaf „litla manninum á gólfinu“ undir fallöxinna ef einhver óhöpp og slys eiga sér stað og fyrirtækið og stjórnendur fría sig allri ábyrgð. Sér í lagi þegar þær staðreyndir blasa við í kringum þetta tiltekna slys að það hefði aldrei orðið hefði búnaður kranans uppfyllt reglugerð Vinnueftirlitsins.“Reyndu að ná sátt í málinu Að mati Verkalýðsfélags Akraness er kjarni málsins sá að þetta slys átti aldrei að geta gerst ef fyrirtækið hefði haft búnaðinn í lagi. „Því er það þyngra en tárum taki að fyrirtækið skuli hafa vogað sér að gefa út einhliða yfirlýsingu þar sem allri ábyrgðinni var varpað á herðar starfsmannsins. Í ljósi þessara staðreynda að búnaðurinn virkaði ekki sem skyldi er eðlilegt að spyrja: hver er ábyrgð fyrirtækisins á því að okkar félagsmaður leið andlegar vítiskvalir vegna þessa slyss, hefur stöðu sakbornings hjá lögreglu og hefur misst lífsviðurværi sitt til 14 ára?“ Þess er getið í greininni að Verkalýðsfélag Akraness hafi komið öllu því sem kemur fram í greininni vel á framfæri við stjórnendur Norðuráls og reynt að leysa málin í sátt. „En í ljósi þess að það hefur ekki tekist þá sér félagið sig knúið til að greina frá málinu. Enda tekur VLFA ekki þátt í þöggun og meðvirkni þegar kemur að því að verja réttindi okkar félagsmanna eða þegar félagið telur að þeir séu beittir misrétti.“Lesa greinina í heild hér.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Sjá meira